Úrval - 01.03.1975, Side 46
44
ÚRVAL
an hafa sex slíkar stöðvar verið
opnaðar í þessari borg.
Kristileg félög ungra kvenna
hafa stofnað til svona starfsemi á
mörgum sviðum og bjóða fjölbreytt-
ar æfingar og leiki, tennis, golf og
sundiðkanir.
Árið 1972 innrituðust 500 þúsund
konur í sundflokkana. Til viðbótar
má geta þess, að Rauði kross Banda
ríkjanna býður nú fólki til íþrótta-
iðkana sérstaklega í sundi, en um
það sóttu þar 40 þúsund manns í
fyrra. Samt eru ennþá alltof fáir,
sem eiga slíkra kosta völ.
Aðrir — já, margar milljónir
manna og kvenna — verða að finna
sínar eigin leiðir til heilsusamlegr-
ar hreyfingar í smáum stíl og fá-
mennum hópum. Á götum borg-
anna og þjóðvegum landsins trimm-
ar fólk og skokkar á hverjum
morgni fyrir morgunverð.
Talið er, að sex milljónir manna
fari úr bandarískum borgum um
hverja helgi upp um fjöll og firn-
indi til að flýja menninguna.
Skíðaíþróttin er mjög vinsæl í
Ameríku, og hundruð skíðaskóla
hafa risið síðustu. tvo áratugi allt
frá Vail í Colorado til Hvítufjalla
í New Hampshire. Snjólaus héruð
og fylki eins og til dæmis Georgia
verða að láta sér gervisnjó nægja.
Alls staðar spretta sömuleiðis
upp svonefndar „heilsulindir“ þar
sem íþróttahús og tæki eru tekin
á leigu fyrir sérstakt gjald árlega
til æfinga almenningi, sundlaugar,
sauna-böð og steypuböð.
Heilbrigðisyfirvöld telja næstum
alla eiga völ á einhverju slíku —
tækjum og ráðum, á hvaða aldri
sem þeir eru, ef áhugi er fyrir
hendi.
En öllum er ráðlagt að athuga
eftirfarandi reglur:
Ræðið áform ykkar við lækni og
fylgið ráðum hans í framkvæmd.
Takið streitupróf, sem margir lækn
ar og þjálfarar veita, til að ganga
úr skugga um, hvað hver má bjóða
sér af líkamlegu erfiði.
Byrjið varlega og stig af stigi,
aukið æfingar og átök smátt og
smátt, eftir því sem kraftar sýna,
að sé hæfilegt.
Hefjið hvert námskeið eða æf-
ingatímabil með léttum byrjunar-
æfingum, ljúkið með afslöppun og
hvíld. Það veitir aðlögun einkum
fyrir hjartað, sem ekki má ofreyna
með of örum breytingum.
Æfið daglega eða að minnsta
kosti nokkrum sinnum í viku. Fá-
einar æfingar með löngu millibili
efla ekki hæfni og orku og gera
jafnvel meira mein en gagn með
því að ofreyna veiklaða vöðva og
líkamsvefi. ☆
Bættu ofurlitlu við sannleikann, og þá dregur þú óafvitandi frá
honum um leið.
Dell Crossword.