Úrval - 01.03.1975, Síða 124
122
URVAL
HAFA NÝRRI TEGUNDIR PILL-
UNNAR ÁHRIF Á EFNASKIPTI
LÍKAMANS EINS OG ELDRI
GERÐIR? Miklu minni en eldri
gerSirnar. Sérhver kona framleiðir
og hagnýtir estrogen og progester-
on á sinn sérstaka hátt. Hinar
óþægilegu hliðarverkanir pillunnar
— viðkvæmni í brjóstum, ógleði
og aukin þyngd, blæðingar milli
tíða, stafa annaðhvort af of mikl-
um hormónum fyrir þarfir þeirrar
sérstöku konu, eða of litlum. Þess-
ar hliðarverkanir lagast venjulega
fyrstu þrjá mánuði pillunnar, eftir
því sem líkami hennar venst hor-
mónabreytingunum.
Ef einhverjar óþægilegar hliðar-
verkanir eru enn til staðar eftir
þrjá mánuði, ætti konan að gera
lækni sínum viðvart. Venjulega
dugar þá að fá aðra tegund af pillu
með öðru hlutfalli milli estrogens
og progestrogens. Fylgikvillar, sem
valda því að konan verði að snúa
frá pillunni sem getnaðarvörn eru
sjaldgæfir.
GETUR EITTHVAÐ SKELFI-
LEGT KOMIÐ FYRIR MIG EFTIR
TUTTUGU ÁR, AF ÞVÍ AÐ ÉG
NOTA PILLUNA? Þótt enginn geti
spáð því með fullri vissu, hvað
gerast kunni eftir tuttugu ár, benda
þær rannsóknir, sem fram hafa
íarið til þessa, ekki til þess að neins
konar reiðarslags sé að vænta. —
Reynslan hefur sýnt, að líkindi til
alvarlegra hliðarverkana virðast
ekki aukast, þótt pillan sé notuð
árum saman. Þessar hliðarverkan-
ir koma venjulega í ljós á fyrsta
ári, ef þær koma í ljós á annað
borð, og hverfa næstum því allar,
ef konan hættir að taka pilluna.
Nýleg, bresk rannsókn sýndi, að
aðeins 14% kvenna, sem fengu
blóðtappa meðan þær notuðu pill-
una, fengu blóðtppa aftur innan
næstu sex ára.
Aukinn blóðþrýstingur er fylgi-
kvilli pillunnar, sem hverfur, þeg-
ar notkun hennar er hætt. Meira
en 11 þúsund konur — þriðjungur
þeirra notaði pilluna — hafa verið
rannsakaðar í Kaliforníu síðan í
desember 1968. Ein af niðurstöðum
þessarar rannsóknar er sú, að þær,
sem taka pilluna, hafa örlítið hærri
blóðþrýsting en aðrar konur, sem
þátt taka í rannsókninni, en blóð-
þrýstingur þeirra er samt vel inn-
an eðlilegra takmarka.
Örfáar konur hafa þó fengið of
háan blóðþrýsting og læknar hafa
láðlagt þeim konum að hætta að
nota pilluna. Rannsóknin sýnir
einnig, að þær sem áður tóku pill-
una en hættu því vegna of hás
blóðþrýstings, fengu aftur sama blóð
þrýsting og þær, sem aldrei höfðu
notað pilluna. (Hár blóðþrýstingur
er algengasti fylgikvilli þungunar;
hann lagast venjulega þegar barn-
ið fæðist hjá sumum konum hefur
pillan að því er virðist sömu áhrif
og þungun).
ERU NOKKRAR GÓÐAR HLIÐ-
ARVERKANIR VIÐ PILLUNA? Já,
og listinn lengist. Til viðbótar við
fyrrgreind æskileg áhrif á brjósta-
bólgu, sem nýlega hafa uppgötvast,
leiddi rannsókn, sem gerð var á