Úrval - 01.03.1976, Side 28

Úrval - 01.03.1976, Side 28
26 ÚRVAL sem gætu átt við veiðihund. En ég hef ekki gefist upp ennþá...” Henry Junes hafði mestan hluta lífsins átt sér draum. Til fjórtán ára aldurs hafði hann átt heima í sveit, þar sem hann eyddi mörgum unaðs- legum eftirmiðdögum á kanínuveið- um með veiðihundinum sínum og uppáhalds veiðitækjum. En þegar faðir hans dó, varð hann að flytjast til bæjarins með móður sinni til að vinna fyrir lífsnauðsynjum. Henry vann margt srnálegt meðfram skói- anum. Síðar fór hann I kvöldskóla og varð bankastarfsmaður, þar sem hann sá mikla peninga, en varð ekki eigandi nema lítils hluta þeirra. Hann sat 35 ár á sömu skrifstofunni, við sama skrifborðið og.vann sömu verkin — dag eftir dag, mánuð eftir mánuð, ár eftir ár. En drauminn átti hann allan tímann: Einn góðan veðurdag myndi hann flytja út í sveitina aftur og upplifa dýrðardaga æskuáranna. Og nú, þegar hann var orðinn sextíu og sex ára gamall, hafði hann keypt sér hús — á eyðijörð, þar sem allt var í niðurníðslu og þessvegna ekki mjög dýrt, en býli var það samt! Það voru ekki margar kanínur á enginu, en aftur á móti hafði hann á gönguferð- um sínum rekist á stóra hópa af lynghænum og skemmt sér konung- lega, þegar hann sá þær ganga á vængjunum. Hann hafði líka keypt sér góða haglabyssu. En hund? Hann átti engan, og hund eins og hann langaði til að eiga var ekki auðvelt að fá, jafnvel þótt hann ætti fyrir honum. Og svo höfðu örlögin sent þennan dásamlega veiðihund af himnum ofan og látið hann lenda hjá þeim, eins og hann hefði alltaf átt þar heima. Junes hafði frá byrjun gert sér grein fyrir, að hann yrði að setja tilkynningu í blöðin varðandi hund- inn. Það var skylda hans og hann skammaðist sín fyrir að vera ekki búinn að því. Auðvitað myndi eigandinn vilja fá svona fallegan hund aftur, hugsaði hann — og hann fann, að honum leið ekki rétt vel. Nokkrum dögum síðar var aug- lýsing komin í dagblaðið svohljóð- andi: FUNDIÐ. HUNDUR. AF- HENDIST EIGANDA EFTIR NÁ- KVÆMRI LÝSINGU. Vika leið og enginn spurði um hundinn. Svo keyrði ókunnugur bíll upp að framhlið hússins. Junes hafði verið að búa til eplasafa og konan hans var í þessu að koma úr ávaxta- garðinum með svuntuna fulla af plómum. Ókunni maðurinn gekk til þeirra. Þau sáu að hann var hávaxinn, og bros hans var drengjalegt, en þau tóku líka eftir því að önnur jakkaerm- in var tóm. ..Afsakið að ég trufla,” sagði hann. ,,Ég kem til að... Nei, eplasafi!” greip hann fram í fyrir sjálfum sér og flautaði eins og skólastrákur. ..Dásamlegur, nýr epla- safi!' ’ Junes sótti glas og fyllti það úr
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.