Úrval - 01.03.1976, Síða 33

Úrval - 01.03.1976, Síða 33
SVIKARAR Á SVIÐIKYNLÍFSLÆKNINGA 31 Henni var sagt, að þetta væri gert til að komast að því, hvort sjúklingurinn hefði „dulda kynvilluhneigð. ” Þannig mætti lengi telja. Talið er, að 1 Bandaríkjunum séu starfandi 3300 til 5000 kynlífslæknar. Um helmingur ber nafn með rentu, hitt eru svikarar og hafa sumir þeirra afbrotaferil að baki. Gallinn er sá, að þarí landi geta allir opnað lækninga- stofu og kallað sig kynlífslækna. Þeir þarfnast ekki löggildingar, engin menntunarskilyrði em sett, og ekki þurfa þeir heldur að fylgja siðaregl- um venjulegra lækna. Kynlífslækningar eru tiltölulega nýjar af nálinni, en þær hafa breiðst mjög ört út. Áður en dr. William H. Masters og Virginia Johnson birtu niðurstöður rannsókna sinna árið 1966, höfðu aðeins fáir sálfræðingar og geðlæknar reynt að glíma við vandamál kynlífsins. Þau sýndu fram á, að oft er unnt að leysa slík vandamál. Ef menn þjást til dæmis af getuleysi eða hljóta ekki fullnægingu við samfarir, er oft hægt að bæta úr því. En þegar svo er komið að alls kl5nar fúskarar og þorparar eru farnir að gera sig heimakomna á þessu sviði, geta afleiðingarnar orðið alvarlegar. I Bandaríkjunum hefur sérstök nefnd kannað ástandið í 57 borgum og orðið margs vísari. Sem dæmi má nefna: Ef miðað er við bandaríkst sam- félag almennt, er um helmingur allra hjóna óánægt með kynlíf sitt. Afleiðingin er sú, að sívaxandi fjöldi fólks leitar til kynlífslækna og margir greiða stórfé fyrir hjálpina. í mörgum borgum er gjaldið sem svarar 8 þúsund krónum á klukkustund fyrir einstakling og miklu meira fyrir hjón. Sumir kynlífslæknar setja upp allt að 350 til 400 þúsund krónur fyrir hálfs mánaðar meðferð fyrir hjón. Samt kemur það iðulega fyrir, að kynlífslæknarnir gera aðeins illt verra. Meðferðin hefur valdið þung- lyndi, andlegri bilun og hjónaskiln- uðum. Læknafélagið í San Antonio i Texas geymir ógrynni kvörtunarbréfa frá fólki, sem hefur orðið fyrir barðinu á þessum svokölluðu kyniífs- læknum. Mörg bréfanna snerta mann nokkurn, sem þykist vera doktor í heimspeki, en einnig sálfræðingur, félagsráðgjafi og prestur. Hann hefur þann sið, að sækja samkomur ein- stæðs fólks, komast í kynni við frá- skildar konur og telja þær á að reyna hinar nýju kynlifslækningar hans. Kunnasti svikahrappurinn af þessu tagi í San Antonio er semmilega Donald nokkur Estes, sem hefur afbrotaferil allt frá 1966. Sérgrein hans er að stunda ungar, fráskildar konur, sem eiga i kynlífserfiðieikum. Meðferð hans er meðal annars fólgin í því, að láta þær spígspora allsnaktar fyrir framan aðra viðstadda. Ekki hefur verið unnt að lögsækja þennan mann, þar sem engin lög þar vestra ná yfir atferli hans. Það er alls staðar sama sagan, allir
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.