Úrval - 01.03.1976, Page 34

Úrval - 01.03.1976, Page 34
32 URVAL geta kallað sig kynlífslækna og það ná engin lög yfir þá. Setjum svo, að einhverjum detti í hug að opna kynlífslækningastofu, án þess að hann hafí til þess menntun eða reynslu. Hann byrjar á því að kaupa klámkvikmyndir fyrir svo sem 150 þúsund krónur. Síðan auglýsir hann tveggja daga lækningameðferð fyrir 8 þúsund krónur og fólk kemur til að horfa á klámmyndirnar. Eftir sýning- una eru umræður. Einhver biður þá „lækninn” um einkaviðtal vegna persónulegs kynlífsvandamáls. Þar með er svikarinn kominn á græna grein. Karlar og konur, sem eiga í erfiðleikum á kynlífssviðinu, eru oft auðveld bráð fyrir samviskulausa þorpara. Ung, ógift kona í New York skýrði frá því við yfirheyrslu, að kynlífslæknir hennar hefði haft sam- farir við hana. Hann hafði haldið því fram, að það væri eina aðferðin, sem gæti læknað kyndeyfð hennar. Slíkt er ekkert einsdæmi og gerist víðar en í stórborgum. En jafnvel þó að um sé að ræða viðurkennda kynlífslækna, þá geta aðferðir þeirra orðið æði skrítnar stundum svo ekki sé meira sagt. Einn slíkur hefur þá öfrávíkjanlegu reglu að láta sjúklinginn fara úr hverri spjor þegar hann kemur til meðferðar í fyrsta skipti. Síðan afklæðist læknir- inn og leiðir sjúklinginn inn I næsta herbergi þar sem þeirra bíður ber- strípuð aðstoðarstúlka. Einnig eru haldnir hópfundir með sjúklingun- um, þarsem viðstaddir eru allsnaktir. Það hefur komið í ljós, að fólk, sem á í kynlífserfiðleikum, leitar fyrst til venjulegs læknis, en meinið er að læknar almennt hafa litla menntun á því sviði og geta því ekki veitt neina hjálp að gagni. Fyrir nokkru fór maður til þvag- færasérfræðings í San Francisco og kvartaði undan getuleysi til samfara. Sérfræðingurinn gaf honum fyrst fjörgandi lyf, en þegar það reyndist árangurslaust, tóku við sprautur með karlhormónum. En hormónagjafirnar báru ekki heldur árangur og stafaði það af því, að getuleysi mannsins átti sér geðrænar en ekki líkamlegar orsakir. Maðurinn, sem var giftur, gat ekki haft samfarir við konu sína í meira en ár. Þá vildi svo til, að kunningi hans benti honum á reynd- an og traustan kynlífslækni og eftir 'þrjá mánuði var kynlíf hans orðið eðlilegt. — Þess eru líka mörg dæmi, að konur, sem læknar hafa talið vera með ólæknandi kyndeyfð, hafa hlot- ið fullan bata hjá kynlífslæknum. Baráttan gegn svikurum og fúskur- um á sviði kynlífslækninga er stöðugt að harðna. Margar leiðir hafa verið reyndar, en menn eru sammála um að aðeins cin muni duga: Að löggjlda starfsemi þessara lækna sem annarra.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.