Úrval - 01.03.1976, Page 48

Úrval - 01.03.1976, Page 48
46 ÚRVAL Á upplausnarárunum milli 1920 og 1930 málaði Dali tvö eða þrjú málverk á viku: kúbisma, im- pressjónalisma, púnktisma. 1925 hélt hann fyrstu einkasýninguna,,! Barce- lona, og gagnrýnendurnir voru hrifn- ir. Landi Dalis, Pablo Picasso, stakk upp á sýningu í París. Þangað kom Dali 1927 og uppgötvaði sér til mikillar gleði, að verk hans, þessar martraðir, sem fæðst höfðu af ímyndunarafli hans, féllu eins og sniðið inn í nýja listastefnu, súrreal- ismann. Súrrealistarnir töldu, að nauðsyn- legt væri að varpa hefðbundnum venjum fyrir róða. Þeir heilluðust af hinni óútreiknanlegu veröld undir- vitundarinnar, sem Sigmund Freud var þá að kanna; þeir reikuðu um draumalandslagið með fiðrildanet ímyndunarinnar. Þeir höfnuðu við- tekinni rökvíski og lýstu því yfír, að sorp væri fegurð og óreiða glæsileg- asta form reglu. (Það voru einnig þeir og bandamenn þeirra, sem voru upphafsmenn að fjarstæðubók- menntum.) Dali gekk inn í vímu súrrealistanna, og fyrri, skaðlausar brellur hans urðu að heldur áþreifan- legum og furðulegum uppátækjum. Fram að þessu hafði hann verið mikilhæfur listamaður en fremur laus í rásinni, vatt sér viðstöðulaust frá einni stefnu til annarrar. Nú tók hann að einbeita sér að draumsýnum með hnífskörpum myndum og dá- leiðandi dýpt. Myndir hans bjuggu yfir sérkennilegri vímu, baðaðar í stálköldu ljósi, það var sem þær gegndu einhverju dularfullu lögmáli frá öðrum heimi. Þegar aftur kom heim til Spánar, kynntist Dali Helenu Diakanoff Eulard, sem fædd var í Rússlandi. Hann gaf henni nafnið Gala. Hún var tíu árum eldri en hann, ekki fögur, en sérkennilega aðlaðandi. Þau tengdust þegar í stað tryggðar- böndum. Samband Dalis og Gölu minnti á Dante og Beatrice eða Petrark og Láru. Það var fullkomnun. Það var ekki aðeins, að Galutchka þurrkaði burtu kvíða- og taugaveikl- unarköstin, sem Dali hafði vanda til áður, heldur skipulagði hún líf hans. Hún fann, að hann var engu síður rithöfundur en myndlistarmaður, og hvatti hann til að skrifa sína fyrstu bók. Síðan hefur hann ritað tvo tugi bóka, og ein þeirra, Dagbók snill- ings, varð metsölubók. Sumar mynda Dalis eru áritaðar ,,Gala-Dali.” Og Gala kemur fram í mörgum þeirra. Hún stendur frammi fyrir krossinum í ;,Krossfestingu,” hún er á gunnfánanum, sem Kólum- bus heldur á fofti í myndinni „Kristófer Kólumbus finnur Ame- ríku.” Dali gerir sér fulla greim fyrir því, hve mikið hann á að þakka konunni, sem hann kallar ,,býið, sem færir mér hunang hugljómunar- innar.” Þegar hún kemur inn í vinnustofu hans, rís hann virðulega á fætur og klappar. Það er líka hún, sem gerir alla hans samninga af
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.