Úrval - 01.03.1976, Qupperneq 89

Úrval - 01.03.1976, Qupperneq 89
HRAUSTIR MENN 87 leiðbeina svifflugunum þegar þar að kæmi, lýsa upp lendingarstaðina með kyndlum og leiðbeina mönnum að markinu. Fjórir menn voru valdir til að fara á undan. Þeir voru norskir, en höfðu eins og allir landarþeirra við sömu störf veriðþjálfaðiríEnglandiogSkotlandi, ískóla,semþjóðverjarkölluðuafgildri ástæðu ,,Alþjóðlega glæpamanna- skólann.” Að stinga upp lása, nota sprengiefni, sjálfsvörn með höndum, fótum, byssum og hnífum var allt hluti af kennsluskránni. Aðfararnótt 18. október svifu mennirnir til jarðar á Harðangursfjöll- um með allan sinn útbúnað. Þeirra fyrsta verk varað koma sér upp aðstöðu í Skoland-mýrunum rétt suður af Mösvatni. Margir örðugleikar urðu á vegiþeirra. En skeytið, sem þeirsendu til London kvöldið 19. nóvember var eins og heimboð: „Alheiðskýrt, tunglsljós. Himneskt veður.” Þetta kvöld tróðust 34 sérþjálfaðir breskir návígishermenn (commandos) á aldrinum 18—31 árs í tvær Horsa svifflugur, sem síðan voru hengdar aftan í Halifax sprengjuflugvélar, og svo var lagt af stað yfir Norðursjóinn. En núdróský á loft og enginn veit með vissu hvað gerðist næstu klukkustund- irnar. ÖnnurHalifaxvélin, sem flaug lágt, náði inn yfir Noregsstrendur eins og áætlað hafði verið, og stefndi í áfanga- stað. En þegar komið var um 15 kílómetra inn yfir landið, rakst svifflugan, sem nú hafði verið leyst aftan úr flugvélinni, á fjallstmd. Fáeinum sekúndum seinna stakkst Halifaxflugvélin inn í fjallshlíð um átta kílómetrum frá slysstað svifflug- unnar. Allir sex, sem voru um borð 1 flugvélinni, létustþegarí stað og þrír af þeim, sem voru 1 svifflugunni. Þýskar sveitir komu á staðinn í býti næstamorgun. Þeirfundu þáfjórtán, sem komist höfðu af, þar af sex stórslasaða. Haldin var stutt yfir- heyrsla, en um kvöldið voru allir bretarnir skotnir. Hitt sameykið komst í námunda við fyrirheitna staðinn. Þeir, sem voru komnir, á undan, höfðu lýst upp lendingarbrautina og komið upp stefnumerkingu. Um klukkan ellefu heyrðu norðmennirnir í flugvél, og þótt þeir sæu nú ekkert fyrir skýjaþykkninu, gerðu þeir sér ljóst að vélin kom nokkurn veginn beint yfir þá og sveigði síðan frá, eins og hún hefði sleppt svifflugunni og snúið til baka. Þeir biðu, og væntu þess á hverri stundu að heyra þytinn, sem boðaði lendingu svifflugunnar, en ekkert gerðist. Flugmaðurinn hafði reyndar snúið við yfir lendingarstaðnum, án þess að vita hvar hann var. En svo villtist hann gjörsamlega. Skýjabakkinn varð æ þykkari. ís tók að hlaðast á vængi flugvélarinnar og bæði svifflugan og flugvélin misstu hæð. Eftir þrjár ákafar tiiraunir til að hækka flugið slitnaði sviffluganaftan úrog brotlenti á snævi þöktum fjöllunum. Átta menn fór- ust, fjórir slösuðust.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Úrval

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.