Úrval - 01.03.1976, Page 104

Úrval - 01.03.1976, Page 104
102 URVAL inn kynni að þekkja, að hann væri þaðan. „Þetta er afþragðs svefnpoki,” sagði lögreglustjórinn, um leið og hann snéri til dyra með aðstoðar- manni sínum. ,,Góða veiði,” sagði Poulson á eftir þeim. ,,Nei, ég vi) ekki finna þá,” svaraði lögreglustjórinn. ,,Mér er sagt, að þeir séu vopnaðir. Um morguninn át Poulson góðan morgunmat og hélt svo áfram för sinni. TELFT UM LÍF OG DAUÐA. Sá kvittur gekk meðal þjóðverja, að 800 breskir fallhlífarmenn hefðu lent á Harðangursheiðum, og þjóð- verjar létu það ekki dragast að efna til víðtækra mannaveiða. Vörubílar erfiðuðu upp eftir fjallshlíðunum svo langt sem þeir komust. Gert var útboð um allar herbúðir þjóðverja í Noregi eftir sérhverjum hermanni, sem gæti staðið á skíðum. Norð- mönnum var skipað að láta í té skíði, stafi og skó. Þegar þýsku hóparnir loks lögðu af stað, voru þeir svo óvanir ferðalögum og leitum af þessu tagi, að þeir renndu sér svo að segja yfir ummerkin, sem hefðu gefið norðmönnum drjúga vísbendingu. Þegar hér var komið sögu, höfðu Rönneberg og félagar hans lokið erfiðri ferð sinni til sænsku landa- mæranna. (Fyrir milligöngu breska sendiráðsins í Stokkhólmi var flogið með þá til London.) Þegar Skinrier- land og Haugland, loftskeytamenn- irnir tveir, fréttu um leitina í tilkynningu frá neðanjarðarhreyfing- unni, tóku þeir saman búnað sinn og komust í öruggt fylgsni í fjöllunum. Haukelid og Kjelstrup földu sig líka á hásléttunni. En 8. mars, átta dögum eftir árásina á verksmiðjuna, gæddu þeir Poulson og Helberg sér á rjómabollum („gerfirjóma að vísu, en það minnti á alvörurjóma”) á kaffihúsi í Osló. Hinn tuttugu og fjögurra ára gamli Claus Helberg var fífldjarfur snilling- ur. Vinir hans sögðu, að dirfska hans steypti honum í vanda, snilldin bjargaði honum aftur. Það kann að hafa verið hin óviðráðanlega til- hneyging hans til að lenda í krögg- um, sem kom honum til að yfirgefa Osló, einmitt þegar hin umfangs- mikla leit þjóðverja á hásléttunni var að byrja, og leggja af stað til að ganga í neðanjarðarhreyfinguna 1 Rjukan- dal. Þegar hann flúði eftir árásina, sá hann hvergi móta fyrir þjóðverjum; og hann hafði ekkert frétt af leitinni, þegar hann lagði á sléttuna í átt til Rjukan. Fyrst fór hann með lest til Uvdal, síðan beint af augum. Þegar hann hafði farið á skíðunum um 50 kílómetra, nam hann staðar í fjalla- kofa til að hvíla sig. Um Ieið og hann kom inn, sá hann að þjóðverjar höfðu komið þar. Borðum og stólum hafði veri veh, leitað í rúmstæðum, skápar og skúffur brotnar. Hann hljóp út til að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.