Úrval - 01.03.1976, Síða 107

Úrval - 01.03.1976, Síða 107
HRAUSTIR MENN 105 háværum röddum og stígvélatrampi. Josef Terboven Reichskommissar og Gestapoforinginn Wilhelm Rediess voru komnir með lið sitt og ætluðu að vera um nóttina. Þýskir verðir voru við allar gáttir og grandskoðuðu vegabréf. Um kvöldið, þegar Helberg var að borða, komu þeir Terboven og Rediess inn og lögðu undir sig tvö stór borð við eldstæðið ásamt mönn- um sínum. Þegar þeim hafði verið borið vín, skipuðu þeir tveim ung- um, norskum konum við næsta borð að koma að þeirra borði. Fyrst neituðu konurnar, en þegar fastar var á knúð, gerðu þær það sem fyrir þær var lagt, fýlulegar og þvermóðskuleg- ar. Önnur þeirra, Aase Hassel að nafni, talaði þýsku, og það líkaði þýsku foringjunum vel. Hún var spurð, hvar faðir hennar, sem var liðsforingi í norska hernum, væri. Þjóðverjarnir roðnuðu af illsku þegar húnsvaraði: ,,í Englandi, sem betur fer.” Og hún bætti við: ,, Allir góðir norðmenn eru jössingar (and-nasist- ar).” Eftir þetta létu þjóðverjarnir sem þeir sæju ekki stúlkurnar. Næsta morgun voru 18 norskir gestir í gistihúsinu, þeirra á meðal Aaes Hassel og Helberg, handtekin fyrir „ósvífna framkomu” og sagt, að þau yrðu flutt til Grini fangabúð- anna til yfirheyrslu. Helberg vissi, hvað það kynni að leiða af sér. Hann gat þó ekkert annað gert en að vona að honum tækist að sleppa, einhvers staðar á leiðinni. Þegar fólksflutningavagn nam staðar frammi fyrir gistihúsinu, voru fangarnir leiddir niður þrepin einn og einn í einu. Helþerg hikaði, í von um að geta orðið síðastur upp í bílinn og ná sæti nærri dyrunum. En þjóðverjinn, sem sá um að koma föngunum út í bílinn, sparkaði þá svo illskulega í rassinn á honum, að hann þeyttist á grúfu ofan tröppurn- ar. Um leið og hann féll, losnaði skammbyssan innan úr skíðajakkan- um hans og rann áfram, þar til hún staðnæmdist við stígvélaklædda fæt- ur þýsks hermanns. Þetta er ekki að koma fyrir mig, sagði Helberg við sjálfan sig. Ég er bara að ímynda mér þetta. En byssan var þarna enn, milli gljá- fægðra stígvélanna, og nú tók þjóð- verjinn hana upp og leit á hana. Ef hún yrði sett í samband við skot- bardagann 1 fjöllunum, þurfti Hel- berg ekki að hafa áhyggjur af matnum á morgun. En Helberg var settur á enn um hríð. Hershöfðingjarnir voru farnir af gistihúsinu, og hermennirnir, sem eftir voru, ákváðu að fela örlög norðmannanna yfirmönnum Grini í hendur. Þegar hann var á leiðinni aftur í bílinn, þar sem hann var neyddur til að setjast á bakpokann sinn í ganginn milli sætanna, gerði hann sér grein fyrir öryggisráðstöfunum þjóðverj- anna. Einn vopnaður varðmaður sat fremst í bílnum. Fjórir aðrir, á tveimur mótorhjólum með körfu,
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.