Úrval - 01.04.1976, Page 53

Úrval - 01.04.1976, Page 53
51 hitaeiningar ,,hér” og 20 hitaeining- ar ,,þar” og berjist við að halda kolvetnisneyslunni í 30 grömmum á dag, þá neyta milljónir annarra um víða veröld um 3000 hitaeininga á dag og 600 gramma af kolvetnum án þess að fitna um gramm. Sveitafólk í Afríku og Asíu helst til dæmis grannt alla ævi, enda þótt það neyti margra hitaeininga og kolvetnaauðugs fæðis. Vísindamenn á sviði læknisfræð- innar, sem hafa reynt að komast að orsökum þessa, hafa uppgötvað eftir- farandi staðreyndir: Næstum öll okkar, sem erum of feit, urðum það við neyslu fíngerðrar fæðu, svo sem fínmalaðs sykurs og hvíts, fínmalaðs hveitis og vara úr þessum efnum. Sumir þeir, sem hafa hitaeininga- snautt mataræði, kvarta yfír því, að þeir léttist samt ekki og fitni jafnvel. En samt neyta fjölmargir um víða veröld hitaeiningaauðugs fæðis án þess að fitna. Vísindamenn þessir skýra þetta fyrirbrigði með eftirfarandi orsökum eftir að hafa rannsakað og efnagreint mataræði þúsunda einstaklinga: 1. Vegna þess að fíngerð fæða (sem inniheldur mikið af fínmöluð- um sykri og hvítu, fínmöluðu hveiti) er svo ljúffeng, freistar hún blátt áfram til ofneyslu, þannig að offitan verður næstum óhjákvæmilegur fylgifiskur slTkrar neyslu. 2. Hin dæmigerða meðhöndlun offítunnar er að fyrirskipa sjúklingn- um hitaeiningasnautt fæði. En slíkt fæði er næstum alltaf fíngert og það skortir í ógnvænlegum mæli fæðu- trefjar og dregur þannig úr hæfni meltingarfæranna. 3. Offíta er sjalgæf meðal þeirra, sem eru algerar grænmetisætur, þeirra, sem borða aðeins ávexti, hnetur, grænmeti og svipaða fæðu. Sveitafólk í Afríku og Asíu neytir allt að 3.000 hitaeininga á dag, en fæða þess er mjög grófgerð, og þvf verður það næstum aldrei of feitt. (En um leið og þessit sömu afríkubúar taka að neyta hinnar trefjalitlu fæðu okkar hvítu mannanna, fitna þeir ekki síður en við.) ★ ★ ★ Það er ekki fyrr en á síðustu 5 árum, að sérfræðingar á þessu sviði eru raunverulega farnir að skilja, hvers vegna fólk verður feitt. Rann- sóknir á matarvenjum of feitra einstaklinga gefa til kynna, að þeir fínni seint til ,,saðningarviðbragða”, það er að segja þeir geta borðað ósköpin öll, áður en heilastöð sú, sem stjórnar matarlystinni, gefur þeim merki um, að þeir séu orðnir saddir. Þeir, sem neyta aðeins eðlilegs fæðumagns, verða fyrr saddir, og hætta því fljótlega að borða. Of feitt fólk borðar líka yfírleitt hratt, tyggur illa og er gráðugt í matvæli, sem hafa mjög ihikinn hitaeiningafjölda miðað við efnis- magn. Þar að auki virðast meltingar færi þeirra starfa mjög vel og ná hverri hitaeiningu úr því, sem þeir borða.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.