Goðasteinn - 01.03.1973, Page 17
búinn að vera blindur í nokkur ár. Er til heimilis í grennd við
Akra N. D. hjá dóttur sinni Margréti ekkju Halldórs Hjálmars-
sonar frá Brekku í Mjóafirði, Hermannssonar í Firði. Björn var
fjörmaður mikill og hafði mikla hæfileika til sálar og líkama.
NORÐUSTU BÆIR I EIÐAÞINGHÁ
Hamragerði hcitir norðasti bær í Eiðaþinghá af bæjum þeim,
sem standa nærri fjalli. Bærinn stendur undir háum hamri, sem
hann dregur nafn af. I Hamragerði bjó lengi Methúsalem Sig-
urðsson, Guðmundssonar sýslumanns í Krossavík, Péturssonar.
Kona Methúsalems var Guðrún Skúladóttir systir Björns um-
boðsmanns á Eyjólfsstöðum og síra Sveins í Kirkjubæ. Síra Sveinn
var, áður en hann varð prestur, ritstjóri blaðsins Norðra.
1 Hamragerði voru Hjaltastaðaþinghármenn oft vanir að gista
náttlangt, þegar þeir fóru kaupstaðarferð til Seyðisfjarðar.
Núpsá heitir á, sem kemur ofan úr fjalli og fellur í Gilsá
skammt fyrir austan bæ, sem heitir Hleinagarður. Heyrt hef ég,
að rétta nafn bæjar þessa sé Hleiðrargarður, kallaður svo cftir
Hleiðru eða þá Hleiðrargarði, sem var aðsetur Danakonungs á
dögum Skjöldunga. Hleiðrargarður er norðasti bær í Eiðaþinghá
af vestari bæjarröðinni þar, nær Lagarfljóti.
Þorkell Hannesson, greindur maður og fróður vel, sagði mér,
að á dögum Hans Víums sýslumanns hefði maður búið í Hleiðr-
argarði, er Sigfús hét. Jón hét maður og var Ingimundarson, bjó
að mig minnir á Tjarnarlandi. Sigfús fannst myrtur, og lék grunur
á, að Jón hefði banað honum, því fátt hafði verið á milli þeirra.
Hans Víum bað Jón að ríða með sér til þings, sýndi sig í vináttu
við hann í ferðinni. Tókst honum með kænsku að fá Jón til að
meðganga morðið og svo var Jón dæmdur til lífláts og tekinn af
þar á þinginu.
TALDIR UPP BÆIR í HJALTASTAÐAÞINGHÁ
Getið nokkurra bamda. Lítilsháttar nm œttir þeirra, landslag o.fl.
I minni tíð í Hjaltastaðaþinghá töldust þar 28 bæir. Tveir af
þeim voru nýbýli, og var annað þcirra komið í eyði, þegar ég
fór af íslandi. Auk þess voru 4 bæir, sem aðeins tilheyra Hjalta-
Goðasteinn
15