Goðasteinn - 01.03.1973, Side 60
safnmenn mega gæta að sér í dómum um hluti, sem til þeirra
berast með óljósri fræðslu um uppruna. Við fyrsta álit bendir
ekkert til annars en þess, að hér sé kominn hnífur unninn á
vcrkstæði útlendra fagmanna. Auðvitað er hann til orðinn fyrir
áhrif frá verkum þeirra eins og flcst í smíðum okkar, cn lúnar
hendur bóndans í Fjósum hafa unnið hann að öllu leyti.
Hnífurinn er í stærra lagi af vasahníf að vcra (10x3 cm) og
veldur því það, hve margt er í hann borið af áhöldum. Hann er
gerður af þremur cfnum, járni (stáli), nýsilfri og mahogny. Hníf-
blöðin eru þrjú, mismunandi að stærð, og er eitt þeirra sagarblað.
Hnífskeftið sjálft er samansett af sjö áhöldum, au.k hinna venju-
legu hjalta, þolinmóðs, kinna og slíðra. Bak skaftsins leikur á
þolinmóð og fellur með króki fyrir afturenda. Krókinn notaði
Eyjólfur við að kraka úr hófum hesta við járningu. Undir bak-
krækju cr fyrst korktrekkjari, þá alir tveir. Þvert á móti hníf-
blöðum opnast blóðbíldur til að nota við blóðtöku stórgripa. Inn
í hnífskeftið að aftan eru felldir tveir hlutir, flísatöng og tann-
stöngull. Allt er þetta gert af frábærri vandvirkni og snilli Sama
er að segja um umbúðir áhalda, hjölt og kinnar og undirlag
þeirra. Kinnar eru úr mahogny, hjölt úr nýsilfri. I aðra kinn
(efri) er felld plata úr nýsilfri, og má vera, að smiðurinn hafi í
fyrstu ætlað hana til áletrunar.
Guðrún Eyjólfsdóttir frá Fjósum segist ekki muna fyrr eftir sér
en hnífurinn góði var daglega í fórum föður hennar. Eftir því
ætti hann að vera smíðaður á fyrstu árum aldarinnar. Síðar
smíðaði Eyjólfur annan hníf eigi miður vandaðan en þennan.
Sá hnífur skartaði á landssýningunni 1930. Hann komst í eigu
Ólafs Jónssonar ljósmyndara frá Hvammi í Mýrdal og kynni
að hafa fylgt honum á dauðastund, er flugvélin Glitfaxi fórst í
Faxaflóa.
Guðrún frá Fjósum lagði góðgripi sína glöð í hendur mínar,
og sýnu fegnari varð hún yfir að vita af þeim þar rúmum hálfum
mánuði seinna, er hún hlaut að hverfa frá heimili sínu á flótta
með tvær hendur tómar eins og allir íbúar hinnar fögru og frið-
sælu byggðar úti í Vestmannaeyjum, sem miskunnarlaus eyðing
hefur síðan herjað frá degi til dags.
58
Goðastemn