Goðasteinn - 01.06.1974, Qupperneq 10
þeim, en sléttara er á sundinu. Heitir þar lega, þar sem legið er
til laga. Þegar landmaður hefur veifað að, hleypur hann niður
í fjöruna og krýpur á kné. Merkir það, að bíða skuli næstu bend-
ingar. Landmaður tekur svo næsta lag, sem gefst, stendur þá á
fætur og sveiflar báðum handleggjum eins og í róðri. Er þá ró-
inn iífróður í land.
Enn gefur landmaður bendingu um stefnu, ef straumur er
mikill í hliðinu út í eyrina. Skundar svo til félaga sinna þeim til
aðstoðar.
Brimi svo ört, að ekki sé lendandi, veifar landmaður frá efst
af sjávarkampinum og gengur með veifuna tii austurs frá vörun-
um. Þýðir það, að nú skal leggja frá til Vestmannaeyja. Það var
oftast þrautalendingin, þegar svona stóð á.
Hent getur það, að sjór sléttist eftir að veifað er frá. Er þá
veifan látin falla en tekin svo upp að nýju. Sjómenn bíða þá
úti fyrir og sjá hvað setur. Dæmi voru þess, að þeim gæfist lag
í land eftir svo sem stundarbið.
Landmanni var hlýtt skilyrðislaust, það voru óskráð lög.
Á unglingsárum mínum var sandurinn kallaður kampur, þar
sem hann bar hæst, en ekki kambur, og held ég þeirri venju.
Forsjálir formenn höfðu lýsiskút með sér á sjóinn og helltu úr
honum út fyrir borðstokkinn ef sjó tók að brima til að lægja öld-
urnar. Líklegt þykir mér, að langt sé síðan, er vökul augu tóku
eftir því, að bestu hliðin mynduðust við hvalfjöru. Alltaf rann
þar lýsi úr rekanum, sem öldurnar sleiktu og báru með sér út á
lána.
Þegar róið var við sandana á stórum og þungum áraskipum,
var það oftast erfiðasti kaflinn að setja nær sjó eftir lausum fjöru-
sandi og þá ekki síður að setja upp skipið að loknum róðri. Ef
fáliðað var á skipinu, þekktist að stafnsetja. sem kallað var. Gengu
menn þá að stafni skipsins og brýndu honum neðar í fjöruna og
svo hinum stafninum á sama hátt og svo koll af kolli, þar til
komið var í flæðarmál. Þá fóru skipverjar hver að sínu rúmi,
höfðu hönd á keip og héldu skipinu réttu. Það hét að styðja fram
undir.
Formaður kallaði lagið með þessum orðum: Róið í ]esú nafni.
8
Goðasteinn