Goðasteinn - 01.06.1976, Qupperneq 15
mcst til að vckja vinnumenn sína ef þeir sváfu of lengi. Ekki
máttu dætur hans læra að skrifa, þó löngun væri til þess, en
hannyrðir máttu þær læra hjá prestskonunni í E.inholti, Guðrúnu,
konu séra Brands Tómassonar. Líka máttu þær standa yfir fé hans
til beitar, þegar bræður þeirra voru á sjó. Svona gekk lífið áfram
í árafjölda.
Mig hlægir það stórum, þegar ég heyri það nú hjá yngri kyn-
slóðinni að fólk í gamla daga hefði haft það svo rólegt og kvartar
jafnframt yfir erfiði, en hefur þó nóg til alls að heita má.
Stundum heyrist sagt að fyrr hefði verið svo margt vinnufólk
að húsbændurnir hefðu lítið þurft að vinna, en svo var ekki, flest
fátæk hjón urðu að berjast harðri baráttu með fjölskyldu sína án
þess að hafa neina hjálp, og tek ég hér eina fjölskyldu af mörgum:
Jón Guðmundsson og Guðrún Bergsdóttir í Borgarhöfn bjuggu þar
á rýru koti. Þau eignuðust 12 börn, 2 dóu ung en 10 komust upp,
7 dætur og 3 synir. Allt varð þetta myndarfólk. Elsti sonur,
Sigjón, sjálfmenntaður var yfirsmiður við byggingu Kálfafellsstað-
arkirkju, sem nú er. Hann hefur mikið unnið að húsasmíði hér í
sveit og víða yfirsmiður. Hann býr nú á föðurleifð sinni og hefur
ekki gifst. Guðmundur bróðir hans er þar líka. Sigrtður dóttir
Guðmundar er gift Ara Jónssyni frá Fagurhólsmýri, eiga 4 syni,
2 þeirra, Jón og Guðmundur, eru við nám í Háskóla íslands, og
sagðir góðir námsmenn. Þriðji bróðirinn frá Borgarhöfn, Gísli, var
nemandi í Laugaskóla, að því loknu einn vetur kennari í Suður-
sveit, en dó ungur úr lungnabólgu. Fjórar systurnar giftust og eiga
marga afkomendur, myndarfólk á framfarabraut. Svona rættist
úr fyrir Jóni og Guðrúnu, sem börðust sinni hörðu baráttu og segja
mátti að vantaði allt til alls, en komu sinni stóru fjölskyldu vel
til manns.
Foreldrar Jóns Guðmundssonar voru Guðmundur Jónsson,
fæddur í Skálafellsseli, nýbýli úr eystri jörð á Skálafelli, og Snjó-
laug Jónsdóttir, Höskuldssonar, ættuð úr Landcyjum. Snjólaug var
sína bústaðartíð ljósmóðir hér í sveit og farsæl í öllu, listræn í
höndum eins og bræður hennar, Eymundur í D.ilksnesi og Þorlákur
á Hofi, sem smíðaði Hofskirkju, sem stendur í því formi enn.
Þorlákur smíðaði ljósahjálminn, sem er í kirkjunni, ég held óbreytt-
Goðasteinn
13