Goðasteinn - 01.06.1976, Page 83
Sigurður H. Þorsteinsson, Hvammstanga:
Fyrsta byggð á Hellu
Þorsteinn Björnsson, sá sem fyrstur hóf byggð á Hellu á Rangár-
völlum, var fæddur 10. desember 1886, að Réttarhóli á Gríms-
tunguheiði. Hann hóf búskap á Grímstungu ásamt bróður sínum
Lárusi, en bjó síðar á Öxl í Þingi.
1916 flutti hann svo til Suðurlands. Hann mun síðastur manna
svo vitað sé, hafa flutt allan búsmala sinn um öræfi, milli lands-
hluta. Ekki gerði hann þó „lcjálka hverju kvikendi“, eins og Gnúpa
Bárður, enda flutti hann um ólíkt grösugri slóðir, eða suður
Kjalveg. Þurfti hann 3 jarðir í Árnessýslu undir búsmalann og
keypti þar af tvær, eða Skálmholt og Skálmholtshraun, en leigði
Þjótanda, allar á bökkum Þjórsár.
Hann átti þó eftir að marka spor á bökkum annarrar sunn-
lenskrar ár áður yfir lauk. Skulum við nota hans eigin orð til að
lýsa því nokkuð en svo segist honum frá um áttrætt í viðtali við
Sunnudagsblað Tímans:
„Umsvif verða nú meiri í verslun minni, og flyt ég tíðum slátur-
fé suður til Reykjavíkur.Þá hitti ég eitt sinn Eyjólf heitinn bónda
í Kirkjubæ, sem tekur mig tali og segir: „Þú átt að versla við
bændur, Þorsteinn. Þeir panta vörurnar, sem þeir þurfa, þú reynir
að ná vörunum í heildsölu, flytur þær sjálfur, svo að þú hafir
eitthvað á bílnum austur, og verslar við bændur.“
Mér þykir þetta hreint ekki svo fráleit hugmynd og fer að
ráðum Eyjólfs.
1 nokkur ár höfðu bændur rekið rjómabú eða smjörbú á Rauða-
læk og reistu skála undir starfsemina. Nú hafa þeir miklu minna
umleikis, og ég fæ leigt í skálanum. Enn sem komið er hefi ég ekki
verslunarleyfi. Sæki ég því um það og fæ það vafningalaust. Ég
vil reisa verslunarhús austan við Rangá. Þegar ásetningur minn
Goðasteinn
81