Goðasteinn - 01.06.1978, Page 48
þykktir gegn þeim. Járnbrautarlestirnar áttu þar miklu stærri hlut
að máli. Þær höfðu tekið að breiðast út upp úr 1830 og voru orðnar
mjög algengar í mörgum hinna þéttbýlli landa um miöja öldina.
Þóttu þær allt í senn öruggari, þægilegri og hraðskreiðari farartæki
en gufubílarnir, sem lækkuðu mjög í gengi og hurfu smám saman
úr notkun að mestu.
En engu að stðu.r héldu menn áfram að glíma við hugmyndina um
vagn, sem gengi fyrir eigin afli og væri ekki bundinn við brautar-
spor eða teina. Gufuvélin hafði reynst hafa marga annmarka sem
aflvél í bílum og þess vegna lögðu nú uppfinningamenn allt kapp
á að finna nýjar aðferðir til að knýja vagnana áfram. Og það leið
ckki á löngu, þar til þetta tókst og þá var það sem bensínvélin eða
sprengihreyfillinn kom til sögunnar. Það var árið 1875 sem Austur-
ríkismaðurinn Sigfried Markús tókst að búa til vagn, sem gekk fyrir
bensínvél, en samt hafði uppgötvun hans svo marga og mikla ann-
marka að hún breiddist ekki út. Einkum var stærð vélarinnar mikil
og orkunýtingin lítil. En um sama leyti voru ýmsir þýskir kunnáttu-
menn að vinna að sama verkefni, og raunar voru það þeir, sem loks
tókst að búa til hinn litla og hraðgenga sprengihreyfil, sem hentaði
þessum farartækjum. Var þessi uppfinning þeirra grundvallandi
fyrir bílinn eins og hann kom til með að þróast og breiðast út.
Það var í fyrsta lagi þýski vélfræðingurinn Gottlicb Daimler, sem
lagði grunninn að þessu vinsæla farartæki okkar nútímamanna.
Árið 1883 lauk hann við að smíða fyrsta létta og hraðgenga sprengi-
hreyfilinn og gerði síðan á honum margvíslegar endurbætur á næstu
árum. Árið 1885 kom hann þessari afivéi sinni fyrir á reiðhjóli og
var þar með fyrsta vélhjólið komið til sögunnar. Tveim árum síðar,
1887, kom hann bensínvélinni síðan fyrir í vagni og þá var bíllinn
orðinn að veruleika. En á sama tíma sem Gottlieb Daimler vann
að uppfinningu sinni, var annar þýskur snillingur að þreifa sig
áfram á sama sviði. Það var verkfræðingurinn Carl Friedrich Benz,
sem á þessum árum vann að smíði og margvíslegum endurbótum á
sprcngi- eða gashreyflum og náði skjótum og góðum árangri. Hann
sctti þessa vél sína í vagn ár.ið 1885 cða sama ár sem Daimler tók
að aka um á fyrsta vélhjólinu, og má vart á milli sjá, hvor þeirra
var fremri á þessum vettvangi. Þessir tveir þýsku hugvitsmenn mega
46
Goðasteínn