Goðasteinn - 01.06.1978, Blaðsíða 50
1908 setti hann á markðinn svo nefnda T-gerð Fordbíla, er náðu
feiknamiklum vinsældum og voru framleiddir í milljónatali sam-
fleytt til 1928, er nýjar gerðir tóku loks við.
Henry Ford gerði meira en nokkur annar til þess að bíllinn yrði
almenningseign. Hann skynjaði á undan öðrum, hvaða þýðingu
bíllinn gæti fengið sem alhliða farartæki alls þorra fólks, og lagði
sig því næst fram um að búa til sem allra ódýrasta og einfaldasta
bíla. Tókst honum þetta með því að staðla alla hluti, sem til fram-
leiðslunnar þurfti, og taka upp færibandavinnu í verksmiðjum sínum.
Þannig gat hann brátt hafið umfangsmikla fjöldaframleiðslu og þar
með urðu bílarnir svo ódýrir að jafnvel verkamennirnir hjá Ford
höfðu ráð á að kaupa þá. Síðan hafa velflestir aðrir bílaframleið-
endur fetað í fótspor hans í þessum efnum og átti það sinn þátt í
að bílar breiddust út sem almenningseign fyrr en varði.
íslendingar fengu snemma áhuga á bifreiðum. Var það ofur
eðlilegt, þar sem við vorum miklu verr settir en aðrar þjóðir, þar
sem við höfðum aldrei ráð á að leggja járnbrautir um dreifbýlt land
okkar, þótt mikið væri um það rætt á sínum tíma. Árið 1904,
snemma sumars, kom fyrsta bifreiðin hingað til lands og keypti
hana Ditlev Thomsen kaupmaður með styrk úr landssjóði. Vakti
bifreiðin að sjálfsögðu mikla athygli, þegar Thomsen ók á henni
um götur Reykjavíkur. Einnig fór hann á henni suður í Hafnarfjörð
og austur yfir Fjall til Eyrarbakka og Stokkseyrar. En það er
skemmst af því að segja að þessi fyrsta bifreið landsmanna gafst
illa. Hún hafði verið keypt gömul og notuð og það sem verra var,
þá var hreyfill hennar svo kraftlítill, að oft urðu farþegar að hlaupa
út og ýta farartækinu, þegar brekkur urðu á leiðinni. En það versta
af öllu var þó það, að bifreiðin var alltaf að bila, svo að lítið var
á hana að treysta. Hún var því bráðlega endursend og margir misstu
trúna á ágæti bifreiða við þessa misheppnuðu tilraun. Magnús Sig-
urðsson bónd.i og kaupmaður á Grund í Eyjafirði mun þó hafa
fengið vörubíl til landsins 1907. Eitthvað var hann í ferðum en þó
ekki lengi.
Níu árum eftir Thomsensbílinn eða 1913 komst nýr skriður á
bifreiðamál hér á landi. Það ár komu tvær bifreiðir til landsins.
Skoskur útgerðarmaður í Hafnarfirði, Bookless að nafni, kom með
þá fyrri. Ök hann um Flafnarfjörð og til Reykjavíkur og reyndist
48
Goðasteinn