Úrval - 01.11.1977, Síða 28
26
URVAL
scmi, og engu kynþokkafyllri en
ávextirnir og grænmetið sem maður
sér hellast úr allsnægtahorninu. Þær
eru alltaf jafn sakleysislegar, í hvernig
stellingu sem þær eru.
En stríplur eru bara einn hluti af
ótrúlegri framleiðslu Rubens. Hann
málaði hundruð andlitsmynda,
landslagsmynda, veiðimynda, hljóð-
látra innanhússskreytinga. Fáir lista-
menn hafa túlkað Krist af meiri
innileik: Krist á krossinum, Krist
tekinn af krossinum, Krist særðan
lensu rómverjans. Við finnum þján-
ingu holdsins í augunum og
vörunum, í því hvernig höfuðið
hallast, hvernig líkaminn verður
máttvana. En leyndardómur áhrif-
anna af myndunum er fólginn í þeirri
hreyfingu, sem þær túlka, samspili
efnis og lita — samspili trúarákafans.
Enginn hefur unnið harðar að list
sinni. Þótt listmálaragildið í Ant-
werpen hafí opinberlega útnefnt
Rubens meistara þegar hann var
aðeins 21 árs, hélt hann áfram að
nema og læra alla sína ævi. Um
fimmtugt var hann enn að mála eftir
myndum Titians og annarra til þess
að bæta tækni sína. Hann var sannur
snillingur og málaði ótrúlega hratt og
hikaði aldrei, leiðrétti aldrei. Sagt er
að eitt stærsta og dáðasta sköpunar-
verk hans, Tignun töfranna, hafi
tekið hann sex daga.
Auk þess að vera í sérflokki við
trönurnar var Rubens líka snillingur í
annarri list: Listinni að lifa. Hann var
mjög hamingjusamur í hjónabönd-
um sínum og trúr konum sínum á
tímum sem ekki höfðu slíkar dyggðir
í hávegum. Börn hans virtu hann og
elskuðu. Þegar hann dó, 62 ára að
aldri, var allt fyrirfólk Antwerpen við
útför hans.
Rubens var ekki haldinn því
ístöðuleysi, sem svo oft fylgir mikilli
snilligáfu. Velgengnin spillti honum
aldrei, og hann var jafn nákvæmur í
venjum sínum og umgengni og
spjaldskrárstarfsmaður. Hann hafði
óhemju líkamsþrótt og fór á fætur
klukkan fjögur á hverjum morgni,
sótti morgunmessu og hófst svo
handa. Meðan hann málaði hlýddi
hann á dreng, sem hafði það embætti
að lesa fyrir hann úr Tacitusi eða
Pluarch. Um hádegi tók hann sér
mathvíld og át mestan part græn-
meti, því hann taldi að kjöt væri
óhollt fyrir skapandi listamann.
Klukkan fimm hætti hann að vinna.
Þá var hann vís með að leggja á hest
og fá sér reiðsprett í útjaðri
Antwerpen. Síðar um kvöldið söfn-
uðust vinir hans og fjölskylda saman
til borðhalds og samræðna.
Peter Paul Rubens var fæddur
1577 í Siegen í Þýskalandi, þar sem
faðir hans, Antwerpenbúi — en
Antwerpen var þá hluti af Hollandi
— dvaldi í útlegð. Þetta var ekki
giftusamt heimili. Faðir Peters Pauls
hafði verið sekur fundinn um
hórdóm og dæmdur til dauða. Kona
hans lagði sig alla fram um að bjarga
honum og fékk hann loks lausan úr
fangelsi. Það má vel hafa verið þessi