Úrval - 01.11.1977, Side 57
ÖVÆNT BREYTING Á DRYKKJUSIDUM
55
og öll þessi ritúöl eiga sér nú stað við
yngri aldur en var.”
Hvernig þessir unglingar koma til
með að umgangast áfengi er að
verulegu leyti undir því komið,
hvaða drykkjuvenjur em menningar-
lega samþykktar. En vegna þess að
allar líkur benda til að Bandaríkin
séu að færast til hófsamari drykkju
heldur en tíðkaðist í hinni blautu
fortíð þeirra, standa vonir til að
unglingarnir hallist að hófdrykkju.
Á næsm ámm mun væntanlega
sjást miklu meiri munur á skilgrein-
ingunni milli hófdrykkju og mis-
notkunar áfengis, og þar með leiðir
til að ráða bót á drykkjuvandanum.
Þangað til er enginn, hvorki
drykkjumaður né læknir né vínfram-
leiðandi né neitt þar á milli, sem ekki
myndi fagna þeirri hugmynd, að
þeir, sem fá sér í glas, geti gert það á
menningalegan hátt, sem ljúflega
lyftir andanum, liðkar samræðurnar
og — kannski — rennur ljúflega um
kverkar. Alkóhólismi er alvarleg
hætta — en ef hægt væri að breyta
hlutverki áfengisins þannig að flestir
fæm að drekka hófsamlega, fremur
en láta áfengið svipta sig ráði og rænu
— þá væri hægt að ná tökum á mesta
eiturlyfjavanda heimsins.
★
Blaðakonan Nora Ephron segir: ,,Einu sinni reyndi ég að útskýra
fyrir vinkonu minni hversvegna ég notaði makeup; hún svaraði því
með því að segja mér hversvegna hún notaði það ekki. Hvomg okkar
skildi orð af þvi sem hin sagði.”
Grínleikarinn Jack Benny dáði konu sína, Mary Livingston. Mary
elskaði skartgripi, sérstaklega demanta. Þessvegna gaf hann henni
smám saman fjöldann allan af hringjum, eyrnalokkum og nælum við
hátíðleg tækifæri. 1963 var brotist inn í íbúð hennar á hóteli í New
York og rænt frá henni verðmætum demantshring. Jack var þá staddur
í flugvél á leið til Pittsburg. Þegar hann var lentur þar sögðu
fréttamenn honum atburðinn. Illa bmgðið hringdi hann til Mary, en
hún var ekki inni.»egar hann að lokum náði sambandi við hana og
spurði hvar hún hefði verið sagðist hún hafa verið hjá skartgripasala að
líta eftir öðmm hring. ,,Hvað segirðu,” kallaðijack. ,,Erm strax farin
að litast um eftir öðmm hring?”
,,Auðvitað, ’ ’ svaraði Mary. , ,Það gildir það sama og ef maður dettur
af hestbaki. Ef þú ferð ekki strax á bak aftur, er leikurinn tapaður. ”