Úrval - 01.11.1977, Síða 81
HVAÐ SEGJA ELDFJÖLUN OKKUR?
79
Jarðfræðingar telja að svo sé, og
byggja þeir þá niðurstöðu á upplýs-
ingum sem safnað hafði verið löngu
áður en þessi nýja tilgáta kom til
sögunnar. Basalt úr fornum eldfjöll-
um þekur allan norðurhluta Krasno-
jarsk, Jakútíu og Irkutsk-héraðs. Þar
hefur fundist talsvert magn af
silfurbergi, sem er mjög verðmætt
efni, notað til augnlækninga. Á
svipuðum svæðum í Dagestan hefur
fundist kopar í Khabarosk fannst tin.
Nú þegar leyndarmál hinna fornu
eldfjalla hefur verið gert opinbert er
nauðsynlegt að fínna þau og láta
jarðfræðingum í té nákvæm kort og
leiðbeiningar. Verið er að hanna eitt
slíkt kort yfír slokknuð eldfjöll hjá
Steinefnarannsóknarstofnun sovéska
ríkisins.
Kortið nær yfír eidfjallabeltið við
Kyrrahaf, þar sem mikið er af virkum
og slokknuðum eldfjöllum. Þessi
hluti Sovétríkjanna hefur lengi verið
talinn mikil gullkista. Á kortinu
verða kulnuð eldfjöll merkt og þar
með fæst möguleiki til að gera
jarðfræðilega könnun og framm-
kvæmdaáætlanir sem miða að því að
auka hráefna framleiðslu og bæta við
skrána yfir jarðefni sem vitað er að
finnast á svæðinu.
Kortið minnir helst á yfirborð
mnglsins. Þar eru hundruð gíga,
stórra og smárra, sumir allt að 150
km í þvermál. Það er þakið
óreglulegum blettum í rauðum,
gráum og græn-gulum lit sem mynda
flókið net er þekur ■ allt þetta
geysimikla svæði. Gráu blettirnir
merkja jarðskorpuna. Rauðu blett-
irnir merkja hraun sem eitt sinn var
rauðglóandi en kom upp á yfirborðið
og kólnaði. Á þeim svæðum sem
þannig eru merkt eru miklar líkur á
að jarðfræðingarnir beri nokkuð úr
býtum.
Ógerlegt er að hanna slíkt kort án
þess að þekkja „beinagrind” eða
innri byggingu hinna sloknuðu
eldfjalla. Hver eldfjallagerð gefur frá
sér mismunandi steinefni. Eftir
rannsóknir á storknuðu hrauni eru
gerð þverskurðarkort. Forvitnilegt
atriði hefur verið uppgötvað, en það
er að þegar gígarnir em kulnaðir em
efni eins og sínk og kopar kyrr í
gígnum. Það eina sem jarðfræðing-
arnir þurfa að gera er að leita uppi
, .öndunarfæri” eldfjallanna gömlu.
Kortið er ekki tilbúið ennþá. Þetta
er erfítt starf. Upplýsingamagnið sem
rannsaka þarf til þess að unnt sé að
gera nákvæma mynd af þessum
útdauðu fjöllum er gífurlegt. Auk
þess þarf að reikna út þau lögmál sem
stjórnuðu hegðun fjallanna fyrir
50-100 miljónum ára.
Samskonar kort verður einnig gert
yfír önnur svæði, þangað til öll
Sovétríkin hafa verið kortlögð á
þennan hátt. Þannig mun vísinda-
mönnum reynast auðveldara að leysa
úr mörgum vandamálum sem tengd
em þróun jarðarinnar. Hin fornu
eldfjöll munu segja okkur margt um
uppmna plánetunnar okkar og þau
öfl sem em að verki í iðmm hennar.
★