Úrval - 01.11.1977, Side 96

Úrval - 01.11.1977, Side 96
94 ÚRVAL Svo réðist hann í síðasta norska hvalaleiðangurinn til Suðurskauts- landsins. 1 sjö mánuði sá hann aðeins aðra karlmenn og skip. Mánuðirnir hefðu orðið endalausir, hefði hann ekki kynnst Fredrik Rubach. Fredrik hafði dvalið mörg ár á Svalbarða og naut þess að segja frá reynslu sinni þaðan. Ivar naut þess að hlusta, þegar leiðangrinum lauk, voru þeir ákveðn- ir í að gerast félagar eitt ár á veiðum við Hornsundsfjörð. Og nú, veiðiárið 1970-71, fjórða ár hans á þessum slóðum, skildi hann af hverju landsstjórinn hafði ekki viljað sleppa reynslulausum unglingi laus- um á norðurslóðum. Hornsund getur verið ómildur staður. Það er á 77. gráðu norður breiddar, innan við 1500 km frá norðurpólnum og um 150 km loftlínu frá Longyearbyen, sem er næsta þéttbýli, og óheppi- legur staður fyrir kjána. Vindurinn og kuldinn em nístandi, allt er þar fokið úr fjöllum utan mosi og skófir, klettar og ís. Hávaxnasta tré á eynni var 20 sentimetra birki. Á hverju ári átti Ivar sex vikna sumarfrí í Noregi, drakk bjór og lærði aftur að tala við annað fólk. í ágúst hélt hann aftur til Spitsbergen, á mánaðalöngu kvöldi norðurslóðanna þegar sólin er á lofti allan sólarhring- inn. Hann flutti með sér ársbirgðir af óþarfa eins og bókum og smjörlíki og skosku viskíi og þarfa eins og byssum og lyfjum og fláningshnífum. í Longyearbyen tók hann aftur við sleðahundum sínum og tíkinni Naiku, sem var af þýsku fjárhunda- kyni. Svo deildi hann birgðunum á kofana sína. Aðalkofinn var byggður 1957 fyrir vísindamenn sem bjuggu við Horn- sundsfjörð í nokkra mánuði alþjóð- lega jarðeðlisfræðiárið. Um haustið var kofinn yfirgefinn og stóð auður í áratug. Þegar Fredrik Rubach og Ivar komu fyrst til Hornsunds árið 1967, var kofinn heldur illa farinn. Hvítabirnir höfðu mölvað af honum hurðir og glugga, svo vindarnir bjuggu í húsinu. En máttarviðir allir voru góðir og heilir. Þeir gerðu við kofann og hann þjónaði þeim vel. Nú var Fredrik þar ekki lengur. Hann hafði kosið að dvelja norðar, við Kofaflóa, handan við nesið norðan Hornsunds, á ströndum hins storma- sama íshafs. Þegar Ivar hafði hlaðið Aðalkofann birgðum, sneri hann sér að Fugla- fjallskofa. Það var skynsamlegt að halda við og eiga birgðir 1 tveimur kofum. Aðalkofinn var um tíu kílómetra inn með Hornsundsfirði norðanverðum. Fuglafjallskofi var um 15 km austar, nær fjarðarbotn- inum. Það gat tekið mann á skíðum, gangandi eða á hundasleða klukku- tíma að komast hvern kílómeter, sérstaklega þegar veður versnuðu. Þess vegna var það ómaksins vert að hafa aukakofa. Því víðáttumeiri sem yfír- ferð Ivars gat verið, þeim mun meiri líkur voru til þess að honum veiddust vel refir og birnir. Hann hefði getað
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.