Úrval - 01.11.1977, Side 121

Úrval - 01.11.1977, Side 121
NOl, FLODIÐ OG VISINDIN 119 11.600 árum, og fornleifafræðinga, sem hafa túlkað skrif manns sem uppi var svo sem átta þúsund árum síðar. ÖRK UTA-NAPISHTIMS. Fyrst skulum við líta á hlut fornfræðing- anna. Hann hófst með rústum Níníve, höfuðborgar Assiríu og miðstöð lastanna samkvæmt frásögn Biblíunnar. Þessi borg stóð þar sem áður hét Mesópótamía en nú írak. Þar í nándinni hófst menning Súmera, sem margir fornfræðingar telja fyrstu menningu mannsins, fyrir um 5.500 árum. Og þar fann breski áhugafornfræðingurinn Sir Henry Layard þúsundir leirtaflna árið 1850. Þessar töflur voru fluttar til British Museum. Þar hóf hópur hæfustu vísindamanna að ráða þær framandi rúnir, sem ritaðar voru á töflurnar. Meðal þeirra, sem rýndu í rúnirnar, var maður að nafni George Smith, leikmaður í Assiríufræðum, mynda- mótagrafari fyrir peningaseðla að starfi. Hann kom til safnsins á kvöldin og dvaldi þá klukkutímum saman við að rýna í þessi tákn, sem í augum venjulegra manna voru engu1 líkari en fuglasparki á leiru. Eitt kvöldið tók hann upp leirflís sem þá hafði nýlega verið hreinsuð, og tók að lesa með vaxandi spenningi, á assirísku, frásögn af flóðinu. Það sem Smith las var babýlonsk útgáfa af flóðinu í ljóði, sem kallast Gilgamesljóð. Það segir frá manni að nafni Uta-napishtim og konu hans, sem gerðu sér skip og urðu þau einu til að komast af úr alheimsflóði. Líkingin við söguna af Nóa var svo sláandi, að það gat varla verið tilviljun. Og þar sem persónur frá Babýlon koma mjög við sögu í ýmsum öðrum frásögnum Biblíunn- ar, töldu margir vísindamenn að þessar tvær frásagnir gætu verið að segjafrásamastaðbundnaflóðinu, ef til vill flóði í ánum Efrat og Tígris, sem renna sín hvorum megin Mesópótamíu út í Persaflóa. Enn fleiri vísindamenn neituðu þó að trúa að hinir fornu babýlonsmenn væru að segja frá atburði, sem raunveru- lega hefði gerst. Fimm árum síðar, 1877, kostaði Pennsylvaníuháskóli fyrsta banda- ríska fornleifaleiðangurinn til Mesó- pótamíu. Við fjögurra ára uppgröft í fornsúmeraborginni Nippur dró um 50 þúsund rúnatöflur fram í dags- ljósið og er enn verið að rannsaka þær. Þeirra á meðal var 3700 ára gamalt töflubrot með aðra frásögn af flóðinu sem sagt er frá í Gilgamels- ljóðum. ,,RÉTTA SVARIД. Síðan gerðist það 1922, að enskur fornfræðingur, Sir Leonard Wooley, tók að grafa í eyðimörk Mesópótamíu miðja vega milli Baghdad, höfuðborgar fraks og Persaflóabotns. Þar stóðu brot af mannvirki upp úr sandinum, brot af hofturni sem merkti þann stað er eitt sinn stóð norgin Úr, fyrrum ein af
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.