Úrval - 01.11.1982, Page 19

Úrval - 01.11.1982, Page 19
,,SYNIR MÍNIR ERUADDRUKKNA!’ ’ 17 skelfingu. Ég reyndi samt að sann- færa sjálfan mig um að allt væri í lagi með þau, annars myndu þau kalla á hjálp. Ég færðist skáhallt t átt til þeirra og sá að þau rak burtu. Ég gat lesið hræðjluna í andlitum þeirra og sá hvernig líkamar þeirra streittust á móti. Ég kallaði: ,,Er allt í lagi?” Með sjálfum mér bað ég um að svarið yrði já. En svarið, sem ég óttaðist, kom til mín yfir öldurnar. ,,Nei, það er ekki í lagil" Mennirnir voru sjávarmegin við börnin og reyndu að beina þeim að ströndinni. Þó þau syntu af öllum kröftum miðaði þeim ekkert áfram. Þau voru gagntekin skelfingu. Ég hélt treglega í átt til þeirra. Almáttugur! Hvað gat ég gert til að koma tveim fullorðnum og fjórum börnum heilu og höldnu upp á land? Þegar best lét gat ég synt hundrað metra í sundlaug bæjarins. Ötti og ósjálfráð viðbrögð héldu mér gang- andi. Nú fann ég undirölduna. Geysilegur kraftur togaði í mig og sogaði til fjölskyldunnar. Þrátt fyrir hrópin og ringulreiðina heppnaðist mér að grípa í handlegg lítillar stúlku sem var næst mér. Einhvern veginn, með kröftum sem hræðslan gefur manni, tókst mér að losna úr hrylli- legum krumlum undiröldunnar. Þegar ég stauiaðist upp á grynningarn- ar með litlu stúlkuna skaut óhugnan- legri hugsun upp í huga minn: Láttu hin eiga sig. Gleymdu þeim. Þú getur ekki gert meira. Felix, sem vissi ekki hvað var að ske, var enn að bjástra við brettið sitt. Brettið! Auðvitað. Ég öskraði yfir öldugnýinn: ,,Komið með brettið! Brettið, Felix!’’ Ben og Luke voru enn uppi á ströndinni, þeir hnipruðu sig saman. Pabbi ætlaði út á brettinu, héldu þeir — eða svo sögðu þeir síðar. En Felix hafði séð hvað var að ske og í stað þess að koma með brettið til mín skaust hann sjálfur í gegnum öldurnarog buslaði ákaflega. Ég öskr- aði til hans að koma til baka. En stífur af hræðslu varð ég að fylgjast með honum, hvernig hann klauf eina öldu eftir aðra í árt að höfðunum sem skoppuðu upp og niður með öldunum. Þegar hann hvarf bak við öldurnar synti ég út í átt til hans. Allt í einu skutust tveir grannir og stæltir líkamir fram hjá mér. Ben og Luke klufu öldurnar, sterkir, ungir armar spyrntu þeim áfram. Hin fullkomna mynd mín af jóladeginum var orðin að engu. Mér til furðu sá ég nú brimbretti á öldufaldi. Felix var á leiðinni til baka. Tvö börn voru á brettinu fyrir framan hann og litli drengurinn minn reri með höndum og fótum til að bjarga lífinu. Ég hjálpaði honum og saman tókst okkur að koma brettinu inn á grynningar og koma börnunum á land. En drengirnir mínir, Ben og Luke, voru ennþá úti! Brimbretti voru réttu tækin; ég varð að fá fleiri bretti. Ég hljóp nokkur skref í átt til brimreiðar-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.