Úrval - 01.11.1982, Side 56

Úrval - 01.11.1982, Side 56
54 ÚRVAL og tónaði: „Ef þeir ná saman utan um hann deyr hann. ’ ’ Það var síst af öllu það sem Edward þurfti að heyra. Hann greip um mag- ann og hóf villimannadans. Pabbi náði í Peters lækni sem var nábúi okkar. Hann kom undir eins vegna þess að hann hafði fáa sjúklinga. Hann gaf frænda okkar sprautu sem hafði samstundis áhrif. Andlit hans varð kringlótt og appelstnulitt eins og tröllepli og hendur hans þrútnuðu. Peters læknir varð að gefa honum sprautu móti þeirri sem hann hafði gefið honum áður og greinilega verk- aði ekki rétt. ,,Ef ég hefði ekki verið hér gæti ég hafa drepið þig,” sagði hann. Frá mínum bæjardyrum séð var aðeins einn staður óálitlegri til að eyða þakkargjörðardeginum á heldur en heima með Edward og það var í Maine hjá Carrie frænku. Hún var líklega versti kokkur á Nýja Englandi. Auk þess sem hún hafði gaman af að elda deildi hún eidhúsinu með öðr- um kokki sem hafði næstum jafn- ^mikla hæfíleika og hún sjálf til að élda, það var eiginmaður hennar, Warren. A hverjum þakkargjörðardegi setti Warren upp hvíta svuntu og toque blanche til að steikja gríðarmikinn fugl sem hann kallaði „tuttugu og fjögurra stunda kalkúninn”. Undir- búningur matreiðslunnar hófst klukk- an sex kvöldið fyrir þakkargjörðardag- inn og með hjálp vekjaraklukku, sem vakti hann á fjögurra stunda fresti alla nóttina til að sinna steikinni, var „tuttugu og fjögurra stunda þakkar- gjörðardagskalkúninn” tilbúinn klukkan sex á sjálfan þakkargjörðar- daginn. Enginn í fjölskyldu okkar hafði séð líka þessa fugls en linnulaus orðrómur um hann hríslaðist yfir okkur. Við höfðum heyrt að úr ofnin- um kæmi hann í svartri skel sem fyrst yrði að brjóta gat á. Við fengum líka fréttir af , .fyllingu sem vætt var í með ómældum skammti af gini”. Ginið og svefnleysið var sagt breyta augum Warrens frænda í lítil x og oftar en einu sinni hafði hann fundist víndauður á eldhúsgólfínu. Pabbi samþykkti að eyða þakkar- gjörðardeginum að heiman bara vegna þess að mömmu tókst að leyna hann verstu fréttunum frá Maine — að Warren ætlaði að steikja stærsta „tuttugu og fjögurra stunda kalkún- inn” sem hann hefði fengist við og að hann og Carrie hefðu ákveðið að sam- eina fjölskylduna á þessum þakkar- gjörðardegi. Þegar við komum til hússins þeirra — sem er eitt af þessum losaralegu skökku Mainebýlum sem hanga á klettabrún frammi við sjóinn — og pabbi sá alla bílana sem lagt hafði verið í kring, varð mamma að segja honum frá sameiningu fjölskyldunn- ar. „Farðu og njóttu þess,” sagði pabbi. „Ég bíðíbílnum.” „Við bíðum þá bæði,” sagði Bell amma. Pabbi flýtti sér inn í húsið. Warren frændi þaut til okkar með
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.