Úrval - 01.11.1982, Page 85

Úrval - 01.11.1982, Page 85
HVER MYRTINAPÓLEON? 83 mikinn áhuga á eiturfræði (toxi- cology). En hverjum sem heimsótti hann duldist ekki að hann hafði áhuga á fleiri efnum en þeim sem tengdust raunvísindum. Setustofan var full af munum sem minntu á Napóleons- tímann. Yfir arinhillunni var mynd af keisaranum I krýningarskrúðanum. Framan við stóran, fornan spegil í gylltum ramma var brjóstmynd af Napóleoni, ungum og síðhærðum. Lítil stytta af Napóleoni á hesti stóð á borðklukkunni og í stofuskápnum var postulínsstell, skreytt með býflug- unni, persónuiegu tákni Napóleons sjálfs. Myndirnar á veggjunum sýndu allar eitthvað viðkomandi Napóleoni. Þetta kvöld var Forshutvud að lesa minningar Louis Marchand sem þá voru nýkomnar út, síðasti framburður manns sem sjálfur hafði orðið vitni að framvindu mála á St. Helenu. Mar- chand hafði skrifað endurminningar sínar aðeins fyrir dóttur sína ,,til að skýra fyrir þér hvers virði keisarinn var mér”. Það var ekki fyrr en kom vel fram á þessa öld að dóttursonur Marchands, einkabarn móður sinnar, gaf leyfi til þess að þessar endurminn- ingar væru gefnar út. Annað bindi þeirra, með lýsingu á árunum á St. Helenu, var nýkomið út. Forshufvud þótti fall Napóleons og dauði fyrir aldur fram ein mesta sorgarsaga allra tíma. Þess vegna hafði hann af mikilli kostgæfni fyigst með stöðugum umræðum sér- fræðinga um hvernig og hvers vegna Napóleon hefði látist — umræðum sem leiddu ekki til skýlausrar niður- stöðu. Læknar og sagnfræðingar voru enn að bera hver undir annan endur- tekningu á einum tíu eða tólf kenn- ingum sem allar voru byggðar á mis- ■ munandi túlkunum á sömu krufningarskýrslum og framburði votta. Forshufvud fundust þær ósannfærandi. Hann trúði ekki að Napóleon hefði látist af krabbameini en hann hafði ekki séð neina hald- bæra skýringu á nokkurri annarri kenningu Kannski eitthvað nýtt kæmi fram í endurminningum Mar- chands. Þetta kvöld var Forshufvud kominn að dagbók Marchands þar sem hann skýrði frá atburðum hvers dags frá janúar til maí 1821, síðustu mánað- anna sem Napóleon lifði. Hann skýrði þar frá, með sannfærandi einfaldleika, hvernig Napóleoni leið hvern dag fyrir sig, hvernig sjúklingurinn sjálfur lýsti sjúkdóms- einkennum sínum, á hverju hann nærðist þann dag og hver áhrif lyf höfðu á hann. Smám saman þóttist Forshufvud sjá mynstur koma í ljós. Marchand lýsti því hvernig Napóleon þjáðist á víxl af svefnsýki og svefnleysi. Hann kvartaði undan því að „fæturnir vilja ekki bera mig”. Svo, síðustu dagana, lýsti Marchand viðbrögðum hins deyjandi manns við lyfjunum sem honum voru gefín. Meðan Forshufvud var að grufla yfir þessu rifjaðist nokkuð upp fyrir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.