Úrval - 01.11.1982, Page 94

Úrval - 01.11.1982, Page 94
92 ÚRVAL Forshufvud taldi sig vita ástæðuna. Frakkarnir hlutu að hafa farið að hugsa um næstu spurningu: hver var morðinginn? Það væri freistandi að kenna Englendingum um. En með tilliti til kringumstæðna á St. Helenu var ólíklegt að Englendingar hefðu getað eitrað fyrir Napóleon án þess að eitra um leið fyrir alla hans heima- menn. Niðurstaðan var óhjákvæmi- leg: Þessi mikla hetja Frakka hafði fallið fyrir tilverknað svikara í hópi sinna nánustu samvistarmanna — heldur óglæsilegt fyrir Frakka. Forshufvud ákvað gegn betri vit- und að birta ófullkomna kenningu sína, segja öllum heiminum frá henni og biðja þess að einhver gæfi sig fram með meiri sönnunargögn. Lokkum Napóleons hafði verið dreift í tugatali meðan hann lifði og að honum látn- um. Meðal núverandi eigenda lokk- anna hlaut að vera einhver sem vildi gefa fáein hár í þágu sögu og vísinda. „Banvænt loftslag" 11. júlí 1816 heimsóttu Napóleon og einn af foringjum hans, Gaspard Gourgaud, Albine de Montholon, sem hafði eignast dóttur nokkrum vikum fyrr. Þegar þá bar að garði var hún að lesa sögu de Brinvilliers mark- greifafrúar, eina frægustu morðsögu Frakklands. Markgreifafrúin var dæmd og tekin af lífi 1676, á dögum Lúðvíks XIV, fyrir að byrla föður slnum eitur og báðum bræðrum sínum. Hún notaði til þess arseník. Áður en hún var tek- in af lífi gerði hún nákvæma játningu sem ásamt játningum tveggja aðstoðarmanna urðu uppistaðan í bókinni sem Albine de Montholon var að lesa. í sjálfu sér var bókin leiðarvísir sem lýsti því skref fyrir skref hvernig ætti að fyrirfara fólki á arseníki þannig að minnstar líkur væru á að það uppgötvaðist. Meðal fyrstu einkenna sem fram komu hjá fórnarlömbum markgreifafrúarinnar voru höfuðverk- ur, lystarleysi, uppsölur, kláði og verkir í brjóstholi. Þegar markgreifa- frúin reyndi að eitra fyrir manninn sinn kvartaði hann undan máttleysi í fótunum. Hann átti erfitt með að standa í fæturna og fann til er hann reyndi að ganga. GASPARD GOURGAUD var óánægðastur allra foringja Napóle- ons. Las Cases hafði vinnu sína, Bertrand og Montholon höfðu konur sínar og börn. En Gourgaud hafði ekkert. Þessi stóri, þeldökki maður, rúmlega þrítugur, var barmafullur af lífsorku og tilfinningum sem fengu enga útrás. Napóleon setti Gourgaud yfir hest- húsin með hestunum tólf en hesta- sveinar unnu þar allt sem vinna þurfti svo verk Gourgauds tók lítinn tíma og enn minni orku. Hann fór í langa reiðtúra um Longwood sléttuna og hltfði hestunum hvergi. Hann reifst, aðallega við Montholon, kvartaði við Napóleon og var í súru skapi.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.