Úrval - 01.11.1982, Page 95

Úrval - 01.11.1982, Page 95
HVER M YR TINAPÓLEON? 93 NAPÓLEONI og Hudson Lowe, nýja landstjóranum sem kom til St. Helenu vorið 181(5, kom illa saman allt frá upphafi. Landstjórinn óttaðist að hann myndi ekki rísa undir ábyrgð sinni og Napóleoni myndi takast að sleppa, líklegast með því að efna til byltingar eyjarskeggja og hermanna í herbúðunum. Til að vinna á móti þessu, þótt fjarstætt væri, gaf hann út nýjar reglur og gekk fast eftir að þær gömlu — sem sumar höfðu verið Iátnar lönd og leið í tíð fyrirrennara hans sem ekki var eins banginn — væru haldnar út í æsar. Flestar reglur beindust að því að takmarka möguleika Napóleons til að spjalla við eyjarskeggja og koma bréf- um til heimsins fyrir utan. Lowe vissi að útlagarnir smygluðu bréfum jafnt og þétt fram hjá ritskoðuninni og gerði það að glæp að eiga viðskipti við nokkurn frá Longwood án sérstaks leyfis. Hann minnkaði svæðið sem Napóleon mátti ríða um án sérstakrar fylgdar og setti aftur í gildi gamla og hundsaða reglu um að enskur foringi yrði að koma til Napóleons minnst tvisvar á dag. Lítilmannlegast var þó að Lowe til- kynnti frönsku útlögunum að árlegt ráðstöfunarfé Longwood yrði lækkað úr 12 þúsund sterlingspundum í 8 þúsund. Napóleon greip þetta tæki- færi til að lítillækka ensk yfirvöld: Hann skipaði svo fyrir að keisarasilfrið skyldi selt. Cipriani beið á hafnar- bakkanum í Jamestown þar til hópur hafði safnast að honum og falbauð þá diskana og fötin. Hann svaraði spurn- ingum um heilsufar keisarans með því að hrópa: „Tiltölulega gott mið- að við þann sem verður að selja silfur- borðbúnaðinn sinn til að draga fram lífíð!” Napóleon gat reitt sig á að þessi tíðindi spyrðust til London, þar sem hann vonaðist eftir samúð bresks almennings. Viðbrögð Napóleons við ógnar- stjórn Lowes voru þau að reyna að uppgefa hann en þegar það tókst ekki notaði hann reglurnar sem árásarefni gegn Englendingum almennt. Þegar reiðsvæði keisarans var takmarkað sagði hann lækninum O’Meara, sem hann vissi að myndi bera orð hans til landstjórans, að Englendingar bæru þá ábyrgðina á ótímabæru fráfalli hans með því að svipta hann mögu- leikum til útiveru og þjálfunar. Hann gerði að engu þá reglu að enskir foringjar yrðu að sjá hann tvisvar á dag einfaldlega með því að koma ekki út úr einkaherbergjum sínum tveimur í Longwood svo dögum skipti. Napóleon galt þessi átök sín við Lowe dýru verði. Fangaveröld hans þrengdist. Gestir urðu fátfðir vegna deilna um hver ætti að skrifa upp á heimsóknarleyfi þeirra. Og keisarinn galt fyrir með heilsu sinni. í maí kvartaði Napóleon um þvagsýrugigt og sagði við O’Mera: ,,Fæturnir neita að bera mig. ’ ’ Honum var síkalt og fékk höfuðverk af sólarljósi. Hann fór að hafa óþægindi í tannholdinu og O’Meara sá að pað var „svampkennt,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.