Úrval - 01.11.1982, Side 102

Úrval - 01.11.1982, Side 102
100 ÚRVAL allan sinn starfsaldur. Móðir hans hafði þjónað í höllinni og þegar Napóleon var sendur í sína fyrri út- legð hélt hún til Vínar til að annast um son keisarans. Hvorki Marchand sjálfur né nokkur úr skylduliði hans hafði nokkur tengsl við konungs- sinna. Það kom af sjálfu sér að March- and gengi í þjónustu keisarans. Montholon var af gamalli aðalsætt. Hann var liðsforingi sem aldrei fór í orrustu. Napóleon hafði neitað hon- um um stöðuhækkun, hafnað honum um heimild til að ganga að eiga Albine og rekið hann úr þjónustu sinni þegar hann gerði það engu að síður. Þegar Napóleon var sendur til Elbu reyndi Montholon að koma sér í mjúkinn hjá Bourbonum. De Sémonville greifi, stjúpfaðir Montholons, var handgenginn d’Artois greifa, bróður Lúðvíks XVIII. Enginn efí er á að það var fyrir þau tengsl að Montholon var gerður að hershöfðingja á dögum fyrri endurreisnarstjórnar Bourbona. En áður en hann gæti formlega tekið við þeim heiðurstitli var hann sakaður um að hafa stolið 5970 frönkum af launum hermanna sinna nokkrum mánuðum áður, og þetta var alvarlegt afbrot. Samt kom Montholon aldrei fyrir rétt. Næst skaut hann upp kollinum í fylgdarliði Napóleons eftir orrustuna við Waterloo. Hvers vegna hafði þessi sérhlífni og hóglífí ungi aðalsmaður allt I einu gengið sigruðum mönnum á hönd? Hvers vegna lagði hann mik- ið upp úr því að komast með til St. Helenu? Hvers vegna, spurði Forshufvud, kaus hann að yfirgefa glauminn í Frakklandi, þar sem menn af hans toga voru nú við völd, og sóa bestu árum ævinnar á af- skekktu eykríli í þjónustu manns sem hann átti ekkert að þakka? Forshufvud grannskoðaði allar heimildir um hegðun Montholons á St. Helenu. Hann hafði vikið sér undan því að takast á nokkurn hátt á við samband Albine og Napóleons, jafnvel þótt Gourgaud ögraði hon- um. Hann kvartaði aldrei, bað aldrei um fararleyfí. Forshufvud gat ekki ímyndað sér nema eina skýringu á svo óvenjulegri hegðun — hann var send- ur í þeim eina tilgangi að koma keisaranum fyrir kattarnef. Það fór varla á milli mála að sá sem skipunina gaf var d’Artois sem hafði áður staðið á bak við banatilræði við Napóleon. Ekki er ólíkiegt að d’Artois hafi sett Montholon tvo kosti: annaðhvort tæki hann að sér að myrða Napóleon eða yrði stungið í tugthús fyrir þjófnaðinn. Aðferðin var enn ein sönnun fyrir sekt Montholons, að dómi Forshuf- vuds. Montholon sá um vínbirgðir í Longwood — hann hafði lyklavöldin að vlngeymslunni. Venjulega kom vínið til Longwood í ámum. Það hefði verið einfalt fyrir Montholon að koma arseníkinu í vínið í ámunum, áður en það var sett á flöskur. Það var líka tiltölulega öruggt. Litlar líkur voru til að hann yrði staðinn að verki
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.