Úrval - 01.11.1982, Page 103

Úrval - 01.11.1982, Page 103
HVER MYRTINAPÓLEON? 101 við það, miklu minni en ef hann hefði komið eitrinu í matinn. Matinn hefði þurft að eitra um leið og hann var borinn fram hverju sinni en ein íblöndun í ámuna myndi tryggja að Napóleon tæki eitrið næstu vikur eða mánuði — í útreiknanlegum skömmtum, því Napóleon drakk fremur lítið vín. Og hér var ein sönnun enn: Einu sinni gaf Napóleon Gourgaud flösku af víninu sínu. Gourgaud fékk svipuð sjúkdómseinkenni og keisarinn. En þungamiðjan var samt á síðustu vikunum sem keisarinn lifði, fyrstu mánuðunum 1821, þegar morðing- inn gekk til verks með sígildum hætti. Hann fékk læknana til að fyrir- skipa lyf, sem eru skaðlaus í sjálfu sér en banvæn fyrir þann sem þegar hefur verið gerður veikur fyrir með hægri arsenlkeitrun. Það var í frá- sögnum vitna af þessum síðustu mánuðum sem Forshufvud fann fullnaðarsönnun þess að Napóleon var myrtur og að Montholon var morðinginn. Lokahöggið í ársbyrjun 1821 var Napóleon orð- inn mjög lasburða. Hann þjáðist af þunglyndisköstum og miklum maga- kvölum. Hvað eftir annað á þessum tíma sagði Montholon við Hudson Lowe að Antommarchi væri þess ekki umkominn að bjarga Napóleoni eins og hann væri á sig kominn og hann yrði að fá lækni frá París. Hann endurtók þetta við Antommarchi og bætti við: ,,Það er konungsins að veljahonum lækni.” Antommarchi var hættulegur á tvo vegu. í fyrsta lagi var hann sér- menntaður líffærafræðingur og hæf- ari til að annast krufningu en læknar voru almennt. í öðru lagi var hann Korsíkumaður og hafði því engar sér- stakar taugar til bresku krúnunnar né þeirrar frönsku og myndi ekki óttast afleiðingarnar þótt hann kæmist á snoðir um eiturbyrlun. Franskur læknir, sem Bourbonar hefðu valið, myndi vita að ekki kæmi til mála að greina eiturbyrlun, jafnvel þótt hann yrði hennar var. Forshufvud gat ekki ímyndað sér að Napóleon, sem var hræddur við enska lækna, myndi leggja líf sitt í hendur lækni sem Bourbonar hefðu valið sjálfir, svo oft sem hann minnti á að d’Artois greifi hefði reynt að láta myrða hann. Montholon var að ljúga að Lowe. Það var hann en ekki Napó- leon sem vildi fá franskan lækni. Um miðjan febrúar leið Napóleoni betur en seint í mánuðinum fékk hann skyndilegt kast. Antommarchi skráði: „Þurrhósti. Uppsölur. Finnst hiti í kviðarholinu, nærri óbærileg- ur.” (Arseníkgreiningin á hárunum sýndi hámarksinnihald á þessum tíma.) Loks í mars tók keisarinn inn uppsöluvínstein til að berjast við sjúkdómseinkenni sín og gerði það eftir hvatningu frá Bertrand, Mont- holon og Antommarchi. Læknar þessa tíma vonuðu að með því að koma af stað uppsölu gætu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.