Úrval - 01.11.1982, Page 104
102
ÚRVAL
þeir losað líkamann við sjúkdóma
sem þeir höfðu ekki önnur ráð við.
Uppsöluvínsteinn — tartar emetic —
er algengt lyf sem inniheldur anti-
mony. Þetta antimony ertir slím-
himnur innyflanna og endar með því
að koma í veg fyrir ósjálfráðar uppsöl-
ur sem maginn hefur til verndar sér.
Þannig getur maginn, undir endur-
teknum áhrifum uppsöluvínsteins,
ekki losað sig við eitur sem ofan í
hann er komið.
Hamilton Smith prófaði nokkur
háranna, sem rökuð voru af Napó-
leoni að honum látnum, sérstaklega
með það í huga að kanna hvort í þeim
væri antimony. Niðurstaðan var
tiltölulega mikið antimony. Alveg
eins mikilvæg uppgötvun var þó að
antimonymagnið 1 hárinu var breyti-
legt, en það sýnir að inntaka lyfsins
dreifðist á nokkurn tíma og varð
þannig enn til að veikja maga Napó-
leons.
Seint í apríl ákvað Napóleon að
hætta að drekka lakkrrssrróp en nota
orgeat þess í stað. Orgeat er drykkur
gerður með sætum npöndlum en
nokkrar beiskar möndlur venjulega
hafðar með til að krydda drykkinn.
Með aðeins sætum möndlum var
drykkurinn skaðlaus. Með beiskum
möndlum gat hann verið banvænn ef
kvikasilfursklóríðs var neytt með.
Um þetta leyti hresstist Napóleon
nokkuð og vann að lokafrágangi
erfðaskrár sinnar. Síðar í mánuðinum
sendi landstjórinn honum kassa af
beiskum möndlum. Nú var orgeatið,
sem Napóleon hélt áfram að drekka,
á leið með að verða banvænt efni.
3. maí sendi Hudson Lowe tvo
enska lækna til að skoða Napóleon.
Þeir fyrirskipuðu án þess svo mikið
sem að sjá sjúklinginn (Montholon
meinaði þeim að sjá hann) iðra-
hreinsun með kvikasilfursklóríði —
calomel. Antommarchi barðist á móti
því eins og ljón á þeirri forsendu að
það myndi aðeins gera sjúklinginn
örmagna án þess að gera honum
minnsta gagn. Málinu var þá skotið
til Montholons sem tók afstöðu með
ensku læknunum. Keisaranum var
gefið lyfið.
Kvikasilfursklóríð var kraftaverka-
lyf þeirra tíma. Læknar gáfu það, eins
og uppsöluvínstein, við mörgum
kvillum sem þeir réðu ekki við,
sérstaklega við iðrastíflu og hægða-
tregðu. Þetta er í sjálfu sér skaðlaust
lyf. En þegar þess var neytt með
beisku möndlunum r orgeatinu, sem
Napóleon notaði nú, gat það verið
banvænt. í möndlunum er vatns-
efnisblásýra (hydrocyanic acid) sem
leysir úr læðingi eitraða kvikasilfurs-
blásýru (mercurous acid) í kvika-
silfursklóríðinu. Ósjálfráðir vöðvar
líkamans lamast og fórnarlambið
missir heyrn og sjón.
Magi fórnarlambs getur verndað
sig fyrir eitrun af völdum kvikasilfurs-
orgeats ef hann losar sig strax við
efnið með uppsölu. En langvarandi
notkun uppsöluvínsteins kemur í veg
fyrir það og þá er voðinn vís.
Skammturinn sem Napóleon fékk