Úrval - 01.11.1982, Síða 122
120
ÚRVAL
óttast að til eldsvoða kynni að koma á
fæðingardeildinni. Setjum svo að
kviknaði í, segir hún. Hvernig átti þá
að koma öllum nýburunum út í tæka
tíð? Eins og málum var háttað stóðu
hjúkrunarkonurnar frammi fyrir því
að velja hverjum ætti að bjarga eða
grípa einhver af handahófi vitandi að
hópurinn sem eftir lægi yrði kannski
eldi og reyk að bráð. Og þetta þótti
Veru Leonard óbærileg tilhugsun.
1 sameiningu hugsuðu þær Vera og
systir hennar, Treva Ellis, upp
björgunarsloppinn. I rauninni er
þetta þykkur frakki með sex 45 sentí-
metra víðum vösum. Það nægir jafn-
vel fyrir stærsta hvítvoðung. Treva,
sem er saumakona að starfi, bjó til sex
svona frakka. Síðan héldu hjúkrunar-
konurnar á fæðingardeildinni
æfingu. Allt fór eins og best varð á
kosið. Það tók þær samtals þrjár mín-
útur að vippa sér í sloppana, stinga
sex kornaþörnum í vasana og hendast
með þau út.
Úr People.
Versti golfleikari í heimi sló kúluna inn í afar erfiða gildru.
,,Hvaða kylfu á ég að nota?” kallaði hann til félaga síns.
,,Kylfan skiptir ekki máli,” svaraði félaginn. „Taktu bara með
nógar vistir og vatn.
Dag nokkurn er Napóleon var að leita að bók í bókasafni sínu sá
hann að hún var í billu sem var nokkru ofar en hann gat teygt sig.
Moncey marskálkur, sem var einn hávaxnasti maður við hirð Napóle-
ons, steig fram og sagði:
„Leyfið mér að hjálpa yður, herra. Ég er hœrrizn yðar tign.”
,, Napóleon yggldi sig og sagði: ,, Þú ert lengri, marskálkur.
Drukkinn eiginmaður á ferð heim til sín eftir að hafa eytt löngum
tíma í drykkju segir við sjálfan sig: ,,Ef konan mín er enn á fótum
skamma ég hana. Hvað á það að þýða að hanga svona frameftir yfir
engu, hún eyðir bara rafmagni og hita. Ef hún er komin í rúmið
skamma ég hana líka. Hvaða rétt hefur hún til þess að fara í rúmið
áður en ég kem heim?”
„Árangur!” hrópaði Edison að aðstoðarmanni sínum sem
undraðist hve gríðarlega oft tilraunir höfðu misheppnast — 50.000
misheppnaðar tilraunir áður en hann fann upp nýja gerð rafhlöðu svo
dæmi sé tekið. ,,Árangur? Þetta er árangur, ég hef náð fjölbreyttum
árangri. Ég kann skil á 50.000 hlutum sem ekki virka.