Upp í vindinn - 01.05.2007, Blaðsíða 31
... Upp í vindinn
RISK MANA GEMENT
Ahættu-
stjórn
Hugtök áhættustjórnarferilsins á ensku og ísiensku (IEC, International Electrotechnical
Commission, International Standard 60300-3-9, Genéve 1995)
stjórnar fái hlutfallslega of mikla
athygli.
Áhættugreinandi þarf að draga
fjölda ályktana og velja afmarkanir
og einfaldanir í starfi sínu. Staðreyndin
er sú að ef skýr markmið skortir, og
það er ekki Ijóst hvernig og til hvers
niðurstaðan eigi að koma að notum,
er ólíklegt að áhættugreinandinn velji
vel. En ramminn og markmiðin koma
einmitt úr skilningi á heildarferlinu.
Önnur hætta sem tengist fram-
kvæmd áhættugreiningar án góðrar
heildaryfirsýnar, er sú að einfaldanir,
afmarkanir og ályktanir verði að lok-
um sjálfsagðar og ekki verði lengur
gert nægilega skýr grein fyrir þeim
og þeirri óvissu sem þeim fylgja. Hætt-
an á þessu er sérstaklega stór ef
áhættugreinandinn verður of sér-
hæfður, þ.e.a.s. sinnir aðallega verk-
efnum af svipuðum toga.
Af ofannefndum ástæðum völdu
greinarhöfundar að breikka áherslur
mastersáfangans, svo að áhættu-
stjórnarferlið í heild sinna fengi tölu-
verða umræðu og athygli. Áfanginn
var samt bara þrjár einingar, svo þessi
ákvörðun leiddi til að sjálf áhættu-
greiningin fékk heldur minni umfjöll-
un en búast mætti við í áfanga sem
heitir einmitt áhættugreining. Það
má segja að virk þáttaka í áfanganum
hafi gefið nauðsynlega, en varla nægi-
lega, þekkingu til að sjálfstætt fram-
kvæma áhættugreiningu svo vel verði
við unað. í Ijósi þessa er það ætlun
höfunda að kalla áfangann "Inn-
gangur að áhættustjórnun", þegar
hann verður kenndur á ný.
Að lokum vilja greinarhöfundar
benda á að hægt er að sækja mun
heildstæðara nám í áhættustjórnun í
háskólum erlendis. Til dæmis má
nefna Mastersáfangann Áhættuverk-
fræði (Risk Engineering) við
Háskólann í Lundi, en þar störfuðu
greinarhöfundar einmitt um langt
árabil. Myndin neðan sýnir þá áfanga
sem teknir eru tvö síðustu árin í
Mastersnáminu Áhættuverkfræði, en
krafist er að þeir sem sækja það nám
hafi lokið u.þ.b. þremur árum í verk-
fræðinámi við norrænan háskóla.
INýr sérsmíðaður vagn
Flotgólfa ehf.
blandar og dælir
Anhydrit/floti á staðnum.
Sparnaður og
vinnuhagræoing fyrir þig.
FLOTGOLF
GIFS&MÚRVERK
GIFS&MURVERK
Flotgólf ehf. býryfirvel þjálfuðum
starfsmönnum, besta fáanlega
búnaði til múrframkvæmda og
rekstraraðilar þess eru frumkvöðlar
í vélvæðingu í múrverki.
Verslaðu við fagmenn
- það margborgar sig!
Plötusteypa
Flotilögn á íbúðarhúsnæði og
iðnaðarhúsnæði
Svalagólf og bílageymslur
Flotun á einangrun
Gólf fyrir geislahitun
Epoxí gólf
Viðgerðir á gömlum gólfum
Steining
Gifssteinar
Flísalagnir
Gifsmúrverk
Alhliða múrverk
Flotgólf ehf. - Miðhrauni 13 - 21% GarðaBæ - Sími 555 6888 - Fax 565 2918 - flotgolf@flotgolf.is
www.flotgolf.is
31