Upp í vindinn - 01.05.2007, Blaðsíða 57
... Upp í vindinn
*
Mynd 1: Möguleg útfærsla á merklngu
flóttaleiða.
uðir eiga að koma þessum öryggis-
málum á framfæri, greina vandamál-
in og hanna lausnir á þeim í samráði
við arkitekt og verkkaupa.
Hvaða fólk er um að ræða ?
Þegar talað er um aðgengismál er oft
einblínt á þá sem eru í hjólastól. Það
sama á við um frágengismálin. Það er
kannski skiljanlegt í Ijósi þess að sá
hópur er áberandi og getur ekki nýtt
sér stiga í rýmingu, en þeir eru oftast
mikilvægur þáttur í rýmingu bygg-
inga. Þegar fjallað er um frágengi og
rýmingu er þó nauðsynlegt að hafa
víðari skilgreiningu á fötlun í huga,
en hér er fjallað um þrjá hópa sérstak-
lega:
• Fólk með skerta hreyfigetu.
í þessum hópi eru þeir sem eru í
hjólastól, þurfa hækjur eða önnur
hjálpartæki til að komast ferða
sinna, en einnig þeir sem t.d. hafa
skert jafnvægi eða eiga í erfið-
leikum með að nota hendurnar.
• Heyrnardaufirog heyrnarlaus-
ir. Mun fleiri eru heyrnardaufir
en heyrnarlausir og geta átt erfitt
með að greina á milli hljóða í um-
hverfinu og eru því háðir skiltum
og Ijósgjöfum til að fá upplýsing-
ar um rýmingu.
• Sjónlausir og sjóndaprir. Fólk
getur verið sjóndapurt vegna
þess að það sér óskýrt, er með
takmarkað sjónsvið eða t.d. ofur-
næmni gagnvart Ijósi og skilum
birtu og dimmu. Blindir verða
auðvitað að reiða sig á hljóðmerki
en fyrir þá sjóndöpru geta t.d.
litir, lýsing og form skipt miklu
máli.
Fleiri hópar geta átt erfitt með að
bjarga sér af eigin rammleik, þ. á m.
fólk með þroskaskerðingu og fólk
með astma eða ofnæmi, að ógleymd-
um börnum. Einnig ber að huga að
þeim sem geta átt við fleiri en eina
tegund fötlunar að stríða, en það er
ekki óvananlegt hjá eldra fólki.
Ef tölur frá Svíþjóð um að 10 %
fólks hafi einhverja fötlun (se. funk-
tionshinder) eru færðar upp á ísland,
má reikna með að um 30 þúsund
manns glími við einhverja fötlun.
í Bretlandi er gert ráð fyrir að 1,3 %
vinnuafls sé með einhverja fötlun [6].
Rýmingaröryggi og hönnun
flóttaleiða
Flvaða kröfur er eðlilegt að gera varð-
andi rýmingaröryggi? Hér skiptir máli
hvaða starfsemi er um að ræða,
hvaða fólksfjöldi og hvaða fólk má
búast við að sé í byggingunni. T.d.
væru gerðar aðrar kröfur til bygginga
sem að meirihluta eru byggðar fötl-
uðum. Einnig ber að hafa í huga að
rýmingaröryggi fatlaðra getur haft
áhrif á öryggi annarra, t.d. ef flótta-
leiðir eru ekki nógu rúmar, og jafnvel
á eignavernd bygginga ef mikill tími
björgunaraðila þarf að fara í að að-
stoða fatlaða við að komast út, í stað
þess að hefja slökkvistörf. Um þetta
er fjallað hér á eftir.
Fatlaðir taka almennt meiri áhættu
við inngöngu í byggingar, þar sem
17. júní torg
í Sjálandshverfinu í Garðabæ
Byggingafélag Gylfa og Gunnars byggir fjölbýlishús viö 17. júní torg í Sjalandi
Garðabæ, ætlaöar 50 ára og eldri. Húsiö skiptist í tvo hluta, 6 hæða byggingu
með einu stigahúsi og L-laga 4 hæða byggingu með 3 stigahúsum. Öll stiga-
húsin eru sambyggð. Undir íbúðarhæöum eru sérgeymslur ásamt bílageymslu
fyrir 49 bíla. Um er aö ræða vandaðar 65 -150 fm íbúðir, sem flestum fylgir
(búðir af ýmsum gerðum til sölu. Upplýsingar gefur Fjárfesting fasteignasala í síma 562 4250.
stæði í lokaðri bílageymslu. í mörgum af stærri íbúð-
unum verður gestasnyrting og baðherbergi. Vandaðar
íslenskar innréttingar eru í öllum íbúðum svo og tæki að
viðurkenndri gerð auk mynddyrasíma. Lyftur eru í öllum
stigahúsum er ganga niður í bílageymslu. Á aðalhurð-
um verða sjálfvirkir hurðaopnarar. Húsið er staðsteypt
og einangrað að utan og klætt að mestu með sléttri og
báraðri litaðri álklæðningu.
FJÁRFESTING
FASTEIGNASALAehf
Borgartúni 3"1
Sími 562 4250
www.bygg.is
57