Upp í vindinn - 01.05.2007, Blaðsíða 56
... Upp í vindinn
Frágengi fyrir alla
Inngangur
Nú á dögum er lögð áhersla á að
hanna byggingar þannig að þær
séu aðgengilegar fólki sem er hreyfi-
hamlað eða háð fötlun af einhverju
tagi. Það er eðlileg krafa að allir
hópar þjóðfélagsins hafi aðgengi að
opinberum byggingum og í reynd
öllum byggingum sem almenningur
hefur aðgang að. Þetta þýðir jafn-
framt að sömu hópar þurfa að eiga
möguleika á því að komast út úr
byggingunni ef hættu ber að hönd-
um.
Flóttaleiðir bygginga eru hannað-
ar í þeim tilgangi að gera fólki kleift
að bjarga sér af eigin rammleik eða
með aðstoð annarra á öruggan
stað. í reynd henta þær þó oft ein-
göngu fólki sem bæði heyrir og sér
og getur hreyft sig hjálparlaust um
stiga, yfir hindranir og út um
björgunarop.
Rétt eins og með aðgengi að
byggingum, getur þurft að gera
ráðstafanir til að fatlaðir hafi eðli-
legt frágengi. Best fer að sjálfsögðu
á að slíkar lausnir séu eðlilegur hluti
af byggingunni frekar en vandræða-
leg viðbót. í eldri byggingum getur
þó verið erfitt að leysa þessi mál á
farsælan hátt án þess að það komi
niður á öðrum kröfum eða nýtingar-
möguleikum.
Hér er ætlunin að velta upp stöðu frágengismála, skoða
stöðuna í nágrannalöndum okkar og hvaða lausnir eru
mögulegar við útfærslu bygginga með tilliti til þessara
mála.
Opinberar kröfur og ábyrgð hönnuða
í íslensku byggingarreglugerðinni eru almennar kröfur um
aðgengi að byggingum. Þar er einnig að finna almenn
markmið brunavarna í byggingum.
Meðal þeirra er krafan um að þeir
sem dvelja í byggingu eigi að geta
bjargast út af eigin rammleik eða
með aðstoð annarra, og þar er
enginn undanskilinn.
Eins og með önnur öryggismál
er það eigandi eða forráðamaður
húsnæðis sem ber ábyrgð á því að
byggingin uppfylli kröfur um
aðgengi og frágengi, en hvaða
kröfur?
Það ætti að vera yfirvalda að
ákvarða hversu miklar kröfur eigi að
gera um möguleika til rýmingar í
byggingum. Núverandi byggingar-
reglugerð tekur ekki sérstaklega á
því. Þar skortir frekari reglur og
viðmiðanir. Á fólk að fara inn í bygg-
ingar á eigin ábyrgð?
RíkisstjórnSvíþjóðarhefurákveð-
ið að árið 2010 eigi allar byggingar,
bæði nýjar og gamlar, að vera að-
gengilegar fyrir allan almenning.
Þetta verður að teljast metnaðar-
fullt markmið þar sem það tekur
einnig til eldri bygginga, þó svo að
sömu kröfur um gæði flóttaleiða
verði varla gerðar til allra bygginga,
nýrra og gamalla. Það sama á við
almennt um betrumbætur á öryggis-
þáttum í eldri byggingum.
Það er hönnuða að tryggja að
ásættanlegt öryggi sé til staðar, en atbeina yfirvalda þarf
til að setja fram viðmiðunarreglur og jafnframt að fylgja
eftir að ákveðin lágmarksviðmið séu uppfyllt, því að ekki
er alltaf hægt að sýna húsbyggjanda fram á áþreifan-
legan sparnað eða ávinning af aðgerðum sem í flestum
tilvikum kosta peninga.
Mikilvægt er að í hönnun bygginga sé tekið tillit frá-
gengis allra. Því miður er enn algengt að ekkert sé fjallað
um frágengi fatlaða við hönnun bygginga. Brunahönn-
Böðvar Tómasson
byggingar- og brunaverkfræðingur
M.Sc., Línuhönnun
Árni Árnason
byggingarverkfræðingur M.Sc.,
Línuhönnun
1 navis 1
■t F E N G U R
GÆÐI ehf
Alhliða múrþjónusta
56