Upp í vindinn - 01.05.2007, Blaðsíða 28
... Upp í vindinn
BEST - Evrópsk stúdentasamtök
BEST - Board of European Students of Technology eru
Evrópsk stúdentasamtök sem samanstanda af um 70
háskólum frá hátt í 30 Evrópulöndum. Meginmarkmið
samtakanna er að efla tæknimenntun og í leiðinni stuðla að
því að stúdentar kynnist fólki og menningu annarra landa.
Árangurinn er sá að virkir stúdentar í BEST eru gríðarlega
hæfir til að takast á við framtíðarverkefni í alþjóðlegu
rannsóknar- og vinnuumhverfi. Fyrir rúmu ári síðan náði
Háskóli íslands fyrsta skrefinu að fullri aðild þegar hann var
einn af þremur háskólum sem teknir voru inn í samtökin
sem áhorfshópar (e. Observer group). Vonast er til að á
aðalfundi samtakanna í apríl hljóti hópurinn fulla aðild.
BEST Námskeið
Hornsteinninn í starfsemi BEST er að bjóða upp á námskeið
fyrir evrópskra stúdenta. Allir nemendur þeirra háskóla
sem fullgild aðildafélög að BEST eru starfrækt við geta
sótt þessi námskeið. Fyrirlesarar námskeiðanna eru ávallt
sérfræðingar á sínu sviði, hvort sem þeir eru prófessorar
eða á vegum fyrirtækja sem að málefninu koma. Einnig er
algengt að fyrirtækin sem koma að námskeiðinum bjóði
upp á vettvangsferðir eða verkefni tengt atvinnulífinu [
case study ]. í lok námskeiðsins er nemendum gert að
þreyta próf. Á grundvelli þessara prófa er árangurinn
metinn til eininga í mörgum aðildarháskólum samtakanna.
Fullgildum aðildarfélögum er svo skylt að halda slík
námskeið að minnsta kosti annað hvert ár og bera þau þá
allan kostnað sjálf.
Orkusamfélagið ísland - vetni og jarðvarmi
Fyrsta BEST námskeiðið á vegum íslenska aðildarfélagsins,
var haldið síðasta sumar. En þá komu hingað til lands
25 tæknistúdentar frá hinum ýmsu löndum Evrópu.
Þau dvöldu hérlendis í tvær vikur og sóttu fyrirlestra um
geymslu vetnis á vegum Hannesar Jónssonar prófessors
í eðlisefnafræði. Námskeiðið heppnaðist mjög vel og er
sívaxandi áhugi á íslandi innan samtakanna.
Drekktu orkuna - frá vatni til rafmagns
Annað námskeið BEST á íslandi verður 18. - 25. mars. Þá
er viðfangsefnið vatnsaflsvirkjanir. Um hundrað umsóknir
hafa borist víða að úr Evrópu, en því miður komast bara
um 25 stúdentar að.
Lokaskrefið að fullri aðild að BEST verður stigið nú í apríl.
Nú þegar geta þó allir stúdentar við Háskóla íslands, sótt
um að taka þátt í fjölda námskeiða í Evrópu allt árið um
kring. Rúsínan í pylsuendanum er svo að þessi námskeið
eru ókeypis fyrir þá sem komast að, einungis þarf að
greiða flugferð á áfangastað. ALLT annað er greitt af
námskeiðshöldurum - ekki slæmt það.
Nánari upplýsingar um BEST má finna á
www. best. eu. org/reykjavik
eða með því að senda póst á
reykjavik@best. eu. org
Faxaflóahafnir sf
Associated
lcelandic
Ports
FÉLAGSSTOFNUN
stúdenta
f e n i L L
VERKFRÆÐISTOFA
Akraneskaupstaður
Tækni- og umhverfissvið
BLUE LAGOON
I C E L A N D
BORGARBYGGÐ
ALEFLI I
BYGGINGAVERKTAKAR
Alefli eh£ Dalhúsum 54 112 Reylgavik
Sinvanúnxer- 660-4470, 660-4471 & 660-4472
Netfang: alefli^simneiis Fax: 587-7141
BobgahVerk
bargarvericis
Conís
• VERKFRÆÐIRÁÐGJÖF
28