Upp í vindinn - 01.05.2007, Blaðsíða 12
... Upp í vindinn
byggða umhverfi". Leiðbeinendur
hans eru dr. Sigríður Kristjánsdóttir
og dr. Trausti Valsson.
Annað nýnæmi
Vettvangi orku- og stóriðjurannsókna
(VOR) var nýlega hleypt af stokkum
við Verkfræðistofnun Háskóla (slands.
VOR er samstarfsvettvangur atvinnu-
lífsins og starfsmanna Verkfræðistofn-
unar um hagnýtar rannsóknir á sviði
orkuvinnslu, orkuflutnings, orkumark-
aða og stóriðjur. Frekari upplýsinga er
að finna á vefslóðinni http://vor.hi.is.
í byrjun árs 2007 þá undirrituðu Verk-
fræðideild Háskóla íslands og sænska
vega- og samgöngurannsóknastofn-
unin (VTI) samstarfssamning um rann-
sóknir á sviði vegagerðar og sam-
göngutækni. Stofnanirnar stefna að
sameiginlegum rannsóknaverkefn-
um, bæði til skamms og langs tíma,
er lúta að gerð, virkni og hagkvæmni
Mynd: Frá vinstri: Sigurður Erlingsson,
prófessor við umhverfis- og bygg-
ingarverkfræði Hi; Urban Karlström,
forstjóri VTI; Marianne Grauers, yfirmaður
rannsókna VTI ; Sigurður Brynjólfsson,
forseti verkfræðideildar HÍ.
vegamannvirkja, umhverfisþátta sam-
gangna ásamt umferðaröryggi svo
dæmi séu nefnd. Samstarfið tekur
einnig til framhaldsmenntunar, sem
gefur nemendum HÍ kost á að vinna
að meistara- eða doktorsverkefni sínu
við VTI. Umsjón með samstarfinu
hefur Sigurður Erlingsson prófessor
við umhverfis- og byggingarverk-
fræðiskor.
Lokaorð
Að framan hefur verið greint frá hinni
miklu vinnu sem stendur yfir hjá um-
hverfis- og byggingarverkfræðiskor.
Starfsmenn skorarinnar takast glaðir
á því verðuga markmiði að efla
íslenska verkfræðimenntun og stuðla
að frekari tækniframförum í þjóðfél-
aginu. Öllum áhugasömum nemend-
um og fyrirtækjum er boðið að hafa
samband og ræða frekari möguleika
á uppbyggingu framhaldsnáms við
skorina. Að lokum, þá má nefna til
gamans að starfsmenn verkfræði-
deildar hafa í anda stórra markmiða
meðal annars sett markið á Hvanna-
dalshnjúk í vor. Við stefnum hátt, við
stefnum á toppinn!!
12