Upp í vindinn - 01.05.2007, Blaðsíða 48
... Upp í vindinn
Til að setja þessar framkvæmdir í
samhengi við umfang annarra fram-
kvæmda þá má geta þess að Héðins-
fjarðargöng eru að stærðargráðunni
5.600 milljónir án vsk. en það er
stærsta framkvæmd sem Vegagerðin
hefur boðið út í einu lagi. Tveir
stærstu verksamningar Kárahnjúka-
framkvæmdarinnar eru annars vegar
Kárahnjúkastífla upp á rúma 10 millj-
arða og gangnagerðin upp á yfir 20
milljarða. Það er því óhætt að fullyrða
að framkvæmdin við Tónlistar- og
ráðstefnuhús er ein stærsta fram-
kvæmd íslandssögunnar.
Jarðvinna og vatnsvarnir
Eins og áður kom fram þá liggur allur
kjallari TR undir sjávarmáli en kóti
undir botnplötu hússins er um -4.0 í
hæðarkerfi Reykjavíkurborgar. Til að
veita húsinu „fast land undir fótum"
þurfti hins vegar að grafa mun dýpra,
eða niður í kóta -11.0 en ekki var
talið að þær fyllingar sem á svæðinu
voru væru burðarhæfar fyrir húsið.
Til greina kom einnig að reisa húsið á
staurum en vegna mikils fjölda þeirra
og takmarkaðs úrvals búnaðar hér-
lendis við niðurrekstur á þeim var
ákveðið að reyna til þrautar að þétta
hringinn í kringum húsið og grunda
húsið með hefðbundnum aðferðum.
Var rekið stálþil í kringum byggingar-
grunninn á þrjá vegu og treyst á að
þau slitlög sem stálþilið væri rekið í
myndu reynast þétt. Reynt var að
áætla hversu mikill heildarleki undir
stálþilið og upp úr botni grunnsins
gæti mestur orðið og var gert ráð
fyrir dælubúnaði sem gæti annað allt
að 5 m3/s sem er jafnt meðalrennsli
Elliðaánna. Komið var upp varaafli
fyrir þennan dælubúnað, ef ske kynni
að straumrof yrði, og var aflgeta hans
um 1 Megawatt sem samsvarar orku-
þörf meðal þorps á landsbyggðinni.
í Ijós kom hins vegar að rennsli inn
í grunninn var mun minna en verstu
spár gerðu ráð fyrir og er rennslið í
dag á bilinu 0.3-0.8 m3/s, háð flóði
og fjöru .
Uppsteypa
Fyllingum undir húsið lauk í árslok
2006 og hófst uppsteypa hússins
með viðhöfn þegar Borgarstjóri, Vil-
hjálmur Vilhjálmsson, Menntamála-
ráðherra, Þorgerður Katrin Gunnars-
dóttir, Samgönguráðherra, Sturla
Böðvarsson, formaður stjórnar Portus-
ar, Björgólfur Guðmundsson, formað-
ur verkefnisstjórnar Portusar Stefán
Þórarinsson og byggingastjóri ÍAV
ísleifur Sveinsson helltu fyrstu steyp-
unni í mótin á framkvæmdasvæðinu
12. janúar 2007.
un og Rafteikning ásamt arkitekta-
stofunni ASK sem sinna munu hlut-
verki Byggingafulltrúa við yfirferð sér-
uppdrátta en Byggingafulltrúaem-
í húsið fara um 30.000 m3 af steypu
sem þýðir að hella þarf að meðaltali
steypu úr einum steypubíl hverja ein-
ustu klukkustund sem uppsteypa
hússins varir en henni á að vera lokið
vorið 2008. Fyrir utan að uppsteypan
sé umfangsmikil þá er hún tæknilega
flókin vegna þykkra þversniða. Til að
fylgjast vel með hitamyndun steyp-
unnar hafa verið útbúnir hitanemar
sem fylgjast með hitanum á mismun-
andi stöðum í þversniðinu. Þessum
upplýsingum er síðan miðlað þráð-
laust þannig að hægt er að fylgjast
með þeim í gegnum veraldarvefinn
hvenær sem er. Steypuvinnu við tón-
listarhúsið verða gerð grein síðar í
sérstakri grein.
Útboð - útboðsvefur
Reikna má með að efniskaup vegna
framkvæmdarinnar geti verið af
stærðargráðunni 7 milljarðar. Þau
munu að mestu leyti verða boðin út
og hefur ÍAV í því skyni komið sér
upp sérstökum útboðsvef þannig að
efnissalar og framleiðendur geta
fylgst með þeim útboðum sem eru í
gangi hverju sinni og þeim útboðum
sem væntanleg eru, sjá http://www.
iav. is/utbodsvefur/.
Fjórhliða samkomulag um
hönnunarrýni og þríhliða
samkomulag um fram-
kvæmdaeftirlit
Aðilarnir sem standa að framkvæmd-
inni, Austurhöfn, Portus og ÍAV hafa
gert með sér samkomulag, ásamt
Byggingafulltrúanum í Reykjavík, um
það hvernig staðið skuli að hönnun-
arrýni verksins. í því skyni hafa verið
ráðnar verkfræðistofurnar Línuhönn-
un, Almenna Verkfræðistofan, Fjarhit-
bættið sér sjálft um yfirferð bygg-
ingarnefndarteikninga. Þetta sam-
komulag er einstakt í sinni röð og er
það von þeirra sem að því standa að
með því megi koma í veg fyrir
tvíverknað í hönnunarrýni og eftirliti.
Helstu mílusteinar í
tímaáætlunum
Samkvæmtnúgildanditímaáætlunum
þá er gert ráð fyrir því að uppsteypu
hússins Ijúki vorið 2008. Þegar haust-
ið 2007 verður hafist handa við
innanhúsfrágang í kjallara og í kjöl-
farið verður hafist handa við lagna-
þátt mannvirkisins en hann er, eins
og framan hefur verið lýst, gríðarlega
umfangsmikill. Innrétting salanna
hefst sumarið 2008 ásamt frágangi á
ytri glerhjúp hússins. Verklok eru
síðan áætluð í árslok 2009.
Lokaorð
Tónlistarhús og ráðstefnumiðstöð við
Austurhöfn í Reykjavík er ætlað að
vera kennileiti Reykjavíkur og laða til
sín mikið af fólki. Húsið á í tónlistar-
legu tilliti að verða á heimsmælikvarða
og vera verðugur heimavöllur Sinfó-
níuhljómsveitar íslands og laða að sér
tónlistarfólk frá öllum heimshornum.
Húsið á einnig að skapa möguleika á
því að halda hér á landi stórar alþjóð-
legar ráðstefnur. Framkvæmdin er
ein stærsta framkvæmd íslandssög-
unnar og við hana er beitt nýjustu
tækni í hönnun og framkvæmd.
48