Upp í vindinn - 01.05.2014, Blaðsíða 8
Frá ferð framhaldsnema á virkjanasvæði Búðarhálsvirkjunar (Mynd: Bryndís Tryggvadóttir).
natural disasters in Europe, enhanceproject.eu); AQUAVALENS
(Protecting the health of Europeans by improving methods for
the detection of pathogens in drinking water and water used
in food preparation, aquavalens.org); Aquaponics (The EU
Aquaponics Hub: Realising Sustainable Integrated Fish and
Vegetable Production for the EU, www.aquaponics.is); norræna
netverksverkefnið VIWAF (Viable Water Management and
Governance for Futures); og alþjóðlega verkefnið GEORG
(GEOthermal Research Group, georg.hi.is). Niðurstöður
rannsóknanna eru birtar í alþjóðlegum vísindatímaritum og
á innlendum vettvangi og má finna lista af greinum á vefsíðu
deildarinnar (www.hi.is/ub) og ávefsíðum einstakrastarfsmanna.
Nýjustu styrkirtil deildarfólks eru úr Rannsóknarsjóði Vísinda- og
tækniráðs. Þar fékkst öndvegisstyrkur til þriggja ára (24 m.kr. á
ári) á sviði jarðskjálftaverkfræði og einnig fékkst verkefnastyrkur
til þriggja ára (8 m.kr. á ári) á sviði vegagerðar.
Hér til hliðar er listi af greinum deildarfólks sem birtust í
alþjóðlegum ritrýndum tímaritum (ISI) 2012-2013.
Nýir starfsmenn
Dr. Björn Marteinsson, verkfræðingur og arkitekt, var ráðinn í
50% dósentstöðu við deildina en Björn hefur undanfarin ár kennt
og stundað rannsóknir á sviði efnistækni, húsbyggingartækni og
orkunýtingar. Ráðning Björns styrkir enn frekar gott samstarf
deildarinnar við Nýsköpunarmiðstöð en Björn er þar í hálfu starfi.
Dr. Maria J. Gunnarsdóttir var ráðin sem sérfræðingur við
deildina með starfssvið innan Vatnaverkfræðistofu. Maria hefur
langa reynslu í vatnsveitugeiranum og sinnir rannsóknum á
sviði vatnsveitna, heilnæmi neysluvatns og stýrir vinnupakka í
Evrópuverkefninu AQUAVALENS.
Hörn Hrafnsdóttir, verkfræðingur hjá Verkís og stundar-kennari
við deildina, var skipuð atvinnutengdur aðjúnkt við deildina frá og
með 1. janúar 2014. Aðjúnktar úr atvinnulífinu sitja deildarfundi
og koma að stefnumótun kennslu og rannsókna.
Deildin auglýsti í haust stöðu á sviði jarðskjálftaverkfræði og
áætlað er að ráðið verði í stöðuna í byrjun árs 2014.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um rannsóknir í Umhverfis- og
byggingarverkfræðideild er að finna á heimasíðu deildar-
innar, www.von.hi.is/ub. Þar er einnig að finna upplýsingar
um kennd námskeið í grunnnámi og framhaldsnámi sem og
meistaraverkefni og doktorsverkefni sem hafa verið unnin
síðustu ár við deildina.
VIÐ ERUM
FLUTT
VERKÍS hefur futt höfuðstöðvar
sínar í Ofanleiti 2, Reykjavík
Ofanleiti 2,103 Reykjavík | 422 8000 | verkis@verkis.is | www.verkis.is