Upp í vindinn - 01.05.2014, Blaðsíða 21
SETMYNDUN í HAGALÓNI
Fossheiði
^drvatn
Heljapkinrt _r- >
Skáldabúðaheiði
Apava
Lyngdalsheiði
Hagalón'
jkarösfjall
iMerkurhraun
Hestfjall
Arnesló
VERKIS
Kottflrunnur. Loftmyntiu eiil
Mynd 1 Yfirlitsmynd af Þjórsá frá Sultartangaióni aö ósum.
á viö vegna eigin þunga. Þetta veldur
því að efnisstyrkurinn veröur mestur viö
botninn en minnstur efst og við bakkana.
Botnskriðiö berst áfram með því að rúlla
eöa skoppa eftir botni árinnar og getur
því tímabundið veriö í einhverri hæö yfir
honum.
Svifaur er almennt ekki reiknaður með
formúlum heldur byggist mat á svifaur
á mælingum á honum í ám. Síðan eru
svokallaðir aurburðarlyklar búnir til út
frá mælingunum og þeir síðan notaðir
til þess að reikna út svifaursmagn við
mismunandi rennsli. Niðurstöðurnar eiga
því eingöngu við viðkomandi á og enn
fremur við viðkomandi stað í ánni sem
mælingarnar fóru fram á.
Botnskrið er hægt að mæla og nota
síðan aurburðarlykla til að meta það við
mismunandi rennsli. Einnig er til fjöldi
reynslujafna til að meta botnskriðið.
Þeir þættir sem hafa mest áhrif á hvort
aur nær að setjast til í lónum eru stærð
og þyngd aurkomanna, stærð og lögun
lónanna og rennslið í gegnum þau, þ.e.
viðverutími vatnsins í lónunum.
Spennusaga af núverandi mati
Árið 1982 kom út skýrsla eftir Hauk
Tómasson um áhrif virkjunarframkvæmda
á aurburð í Þjórsá. Skoðuð voru áhrif
Búrfellsvirkjunar, veitu úr Þórisvatni og
Sigölduvirkjunar. Á þeim tíma lágu fyrir
samræmdar svifaurburðarmælingar I
vatnakerfi Þjórsár í 20 ár og var unnið úr
þeim gögnum á markvissan hátt.
Niðurstöðurnar voru í grófum
dráttum þessar:
• Allur aurburður Köldukvíslar, um
0,5 milljón tonn á ári, sest til í
Sauðafellslóni og Þórisvatni.
• Um 0,8 milljón tonn setjast í
Krókslón við Sigöldu á ári og um
0,2 berast áfram.
• Svifaurburður Neðri Þjórsár
er um 1,7 milljón tonn á ári í
stað 3 fyrir framkvæmdir í ánni,
þar af var grófi svifaurshlutinn
(kornastærð > 0,02 mm) um
0,97. Til viðbótar var botnskrið
metið 0,2 milljón tonn á ári með
reikniaðferðum. Heildarflutningur
grófefnanna (grófa svifaursins og
botnskriðsins) var því metinn á
um 1,17 milljón tonn á ári.
í umræddri skýrslu var svifaurnum
einungis skipt upp í grófan svifaur og
fínan (kornastærð < 0,02 mm).
Mælingar héldu áfram í tengslum við
verkhönnun og umhverfismat virkjana
í Neðri Þjórsá. Rétt eftir aldamótin voru
tiltækar mælingar aftur skoðaðar, nú
með áherslu á aurburð við hugsanleg
framtíðarlón í Neðri Þjórsá. Til að
byrja með voru allar tiltækar mælingar
skoðaðar en nú með fjögurra flokka
skiptingu svifaurs. Gerðar höfðu verið
nokkrar botnskriðsmælingar sem einnig
voru notaðar.
Byrjað var á að skoða hvaða kornastærðir
eru líklegastar til að setjast til í inntakslóni
af þeirri stærðargráðu sem um ræðir
við mögulegar virkjanir í Neðri Þjórsá.
Fyrst voru jafna Stokes fyrir sethraða
fínefna og jafna Rubeys fyrir grófari
kornin notaðar við matið, sjá nánar í
greinargerðinni. Niðurstaðan var sú að
við venjulegt rennsli lægju skilin innan
kornastærðarflokksins mélu (á bilinu
0,002-0,02 mm) en færðust upp um
flokk við aukið rennsli yfir í fínan mó (á
bilinu 0,02-0,06 mm). Hafa ber í huga
að jöfnurnar miða við sethraða í kyrru
vatni og að ekkert trufli fall kornanna.
Við náttúrulegar aðstæður er hins vegar
...upp í vindinn I 21