Upp í vindinn - 01.05.2014, Blaðsíða 78
NAGLARNIR
2013-2014
Frábært félagslíf
Nemendafélagið Naglarnir er að vanda með eitt öflugasta félagsstarf innan Háskólans á þessu ári. 2013-
2014 eru skráðir 83 félagsmenn í félag umhverfis- og byggingarverkfræðinema af þeim rúmu hundrað
sem skráðir eru í námið. Þetta gerir félagið líklega að stærsta og virkasta nemendafélagi innan Háskólans
(miðað við höfðatölu).
Þrotlaus undirbúningsvinna stjórnar sem hófst strax sl. sumar skilaði sér í glæsilegri uppskeru en farið er
í vísindaferðir til frábærra fyrirtækja um allan bæ á hverjum einasta föstudegi. Eftir hörkuviku er gott að
slaka á í góðra vina hópi. Allt frá Mannvit yfir í Vegagerðina auk bruggverksmiðja á við Vífilfell og margra
annara góðra fyrirtækja. Gleðin er stanslaus bæði í huglægu og fljótandi formi.
Arnór Bragi Elvarsson Árið hófst með því að taka
Formaður Naglanna við nýnemum i hinni árlegu
2013-2014 nýnemaferð sem gefur smjörþefinn
af framhaldinu. í september var
farin Haustferð sem venjulega leiðir til vísindaferða út á landi,
en ákveðið var að halda sig innan borgarmarkanna í þetta
sinn. Olíufyrirlestur í Orkustofnun og ratleikur um miðbæinn
heppnuðust gríðarvel en kvöldinu lauk á Zimsen (heitir nú
Brikk) líkt og mörg önnur kvöld. Þar að auki ber að nefna hina
stórglæsilegu skíðaferð til Akureyrar auk árshátíðar Félags
verkfræðinema sem haldin er á Hótel Selfossi. Allt hótelið er lagt
undir fyrir þessa skemmtun og eru matur, ball og gisting innifalin.
Af hverju umhverfis- og byggingarverkfræðinám?
Jafnvægi er að nást í byggingariðnaði eftir erfið ár í kjölfar
efnahagsástandsins og framtíðin er björt. Sífellt er sýnt
fram á þörf á fleira tæknimenntuðu fólki. Þegar tíu prósent af
verðmætasköpun íslands er í mannvirkjaframkvæmdum er
mikilvægt að hafa öflugt fólk sem sinnir hönnun mannvirkjanna.
Það sakar ekki að fólkið sé stórskemmtilegt þvi til viðbótar.
Verkfræðistofur og verktakar hafa sótt í sig veðrið og vinna
verkefni um allan heim auk þess að sinna verkefnum sem upp
koma hérlendis.
Námið er víðfeðmt, krefjandi og lifandi. Maður hefði ekki leyft
sér að detta það í hug að kennarar gætu meira að segja gert
steinsteypu áhugaverða. En jú, það er hægt. Fólk kemur
hvaðanæva að til að stunda námið við Háskóla islands:
Reykjavík, utan að landi eða jafnvel frá útlöndum, og það eru
bæði strákar og stelpur sem sækja um. Síðastliðið haust voru
rétt rúmlega 50% nýnema konur.
Þú getur haft áhrif
Byggingarverkfræðinám undirbýr mann fyrir hvað sem
er og styrkir hæfileika bæði til þess að fara að vinna á
verkfræðistofu, vinna fyrir verktaka, í banka, sitja á þingi, önnur
stjórnunarstörf eða grunn til nýsköpunar. Sem umhverfis-
eða byggingarverkfræðingur getur maður haft áhrif á mótun
samfélagsins. Þess vegna valdi ég námið. Svo er þetta líka
fáránlega skemmtilegt.
Að lokum vil ég, fyrir hönd stjórnar, þakka samnemendum okkar
fyrir frábært ár. Það hefur verið sannkallaður heiður að sinna
störfum fyrir þetta félag sem er svo stútfullt af hressu fólki.
Dagsetning Viðburður
23.08 Nýnemaferð
30.08 Nýnemadjamm
06.09 Mannvit verkfræðistofa
13.09 Hringrás endurvinnsla
20.09 BM-Vallá steypustöð
27.09 Haustferð
04.10 Efla verkfræðistofa
09.10 Samskip
18.10 íslandsbanki
25.10 Arion banki
01.11 Árapartý
08.11 NOVA
15.11 Eykt verktaki
17.12 Próflokadjamm (já, á þriðjudegi)
17.01 Vífilfell
24.01 Keilumót
31.01 Skíðaferð til Akureyrar
07.02 Hnit verkfræðistofa
14.02 HR
21.02 ístak verktakar
28.02 Lífsverk lífeyrissjóður
07.03 Verkís verkfræðistofa
14.03 Árshátíð
21.03 Landsvirkjun
28.03 Aðalfundur félagsins
04.04 Kennarafögnuður
11.04 Vegagerðin
09.05 Fyrirhugað próflokadjamm
78 I ...upp í vindinn