Upp í vindinn - 01.05.2014, Síða 20
SETMYNDUNI
HAGALÓNI
SAGAN AF FÆÐINGU NÚVERANDI MATS
Höm Hrafnsdóttir
lauk prófi í Umhverfis- og
byggingarverkfræði árið
1997 frá Hl og meistaraprófi
í vatns-auðlindaverkfræði
frá Heriot-Watt University í
Edinborg 2001. Hörn hefur
mest af starfað hjá VST/
Verkís eða frá útskrift Joar
til nú með einu hléi. Arin
2002-2005 vann hún hjá
Almennu Verkfræðistofunni
og 2005-2007 hjá Eik
fasteignafélagi. Hörn
hefur kennt straumfræði
við Tækniháskólann 2004,
Orkuháskólann RES 2010
og síðustu tvö misseri við HÍ
og er aðjúnkt við Umhverfis-
og byggingarverkfræðideild
HÍ.
Samspil eldgosa og jökla veldur því að margar ár íslands flytja gífurlegt magn aurs til sjávar auk þess
sem öskugos og jökulhlaup og í sumum tilfellum breytt sjávarstaða veldur því að í farvegum þessara
áa eru kaflar með ofgnægð sands og/eða malar sem áin getur unnið á ef aurnámur hennar ofar í
farveginum þrjóta eða færsla efna frá þeim er hindruð á einhvern hátt. Þegar ráðist er í nýtingu vatnsafls
þessara áa er mikilvægt að skoða vel aurburðareiginleika þeirra því aurinn getur haft áhrif á líftíma véla
og lóna auk þess sem breytingar á aurburði geta haft veruleg áhrif á umhverfið, bæði vatnafar, gróður
og lífríki ánna.
Þjórsá er ein þessara áa og sú þeirra sem hvað
mest hefur verið átt við með veitum og virkjunum
á íslandi. Landsvirkjun er með 5 starfandi
virkjanir á vatnasviði árinnar og verður sú sjötta
tekin í notkun á þessu ári. Þess utan eru uppi
hugmyndir um þrjár nýjar virkjanir neðan Búrfells,
talið ofan frá Hvammsvirkjun, Holtavirkjun og
Urriðafossvirkjun með inntakslónin Hagalón,
Árneslón og Heiðarlón. Við verkhönnun þessara
virkjana kom í Ijós þörf á frekari rannsóknum á
aurburðareiginleikum árinnar með tilliti til þessara
þriggja virkjana þar sem aurburðarmælingar
voru flestar gerðar við þá neðstu og illgerlegt
að yfirfæra þær niðurstöðu á hinar. Sú í miðið,
Holtavirkjun, var einfaldari í meðförum, bæði
vegna þess að lónið yrði staðsett í austari kvísl
Þjórsár við Árnesey og því miðað við að hanna
inntaksvirkin við efri enda lónsins þannig að
aurinn skolist strax framhjá virkjuninni og beint
í vestari kvísl árinnar. Einnig vegna þess að
Þjórsá rennur að mestu á klöpp á kaflanum frá
Hvammsvirkjun að Holtavirkjun. Til þess að varpa
frekara Ijósi á mögulega setmyndun í Hagalóni
var ráðist í rannsóknarverkefni árið 2003 sem er
einmitt umfjöllunarefni þessarar greinar. Yfirlit yfir
ána frá Sultartangalóni að ósum er á mynd 1.
Fræðagrunnur
í árfarvegi berst aur annars vegar fram sem svifaur
og hins vegar sem botnskrið. Þyngri/stærri korn
berast sem botnskrið en þau léttari/minni sem
svifaur. Þó er nokkur skörun á þessu auk þess
sem misjafnt er á milli áa og eftir rennsli þeirra
við hvaða kornastærð skilur á milli botnskriðs og
svifaurs. Mjög fínkornótt efni berst með vatninu
eins og í upplausn, því er styrkur slíkra efna
mjög einsleitur í öllu þversniði árinnar. Eftir því
sem kornastærðin eykst veldur þungi kornanna
því að styrkur þeirra verður mjög breytilegur
innan þversniðs árinnar þar sem þau leita niður
20 I ...upp í vindinn