Upp í vindinn - 01.05.2014, Blaðsíða 25
SETMYNDUNIHAGALONI
Mynd 6 Úr skýrslunni um setmyndun í Hagalóni. Augljós merki sandfoks í skjóli við
árbakkana í farveginum rétt við Tröllkonuhlaup.
Niðurstöður þessarar vinnu eru teknar saman í töflu 2 t Gl.
Þeim ber ágætlega saman við mat byggt á mælingum á
aurburði við Urriðafoss. Því má ætla að það mat sé raunhæft
og af stærðargráðunni 22 Gl á 34 árum eða um 0,65 Gl á ári við
Urriðafoss.
Með tilkomu lóna sem ræna ána grófaurburði sínum fer ákveðið
ferli í gang sem miðar að því að fullnýta sem fyrst aurburðargetu
árinnar. Þvl er það þannig að rofið er alltaf mest efst til að byrja
með og færist síðan niður með ánni þegar jafnvægi er náð eða
auruppspretturnar uppurnar efst. Vegna þessa má ætla að
tímaröðin í rofferli árinnar byrji efst í töflu 2 og leiti niður á við með
undantekningu í Bjarnalóni, Bjarnalæk og Bjarnalækjarskurði.
Aur frá þessum námum hefur auðvitað verið háður dælingu og
rennsli um viðkomandi farvegi. Eftir að Sultartangalón kom til
sögunnar er dæling úr Bjarnalóni orðin óþörf og því fellur sá
þáttur út í framtiðinni. Rof í Bjarnalæk og Bjarnalækjarskurði ætti
að vera mun minna nú en fyrst eftir virkjun. Fossáreyrar virðast
vera nokkuð stöðugar en þó sést að hreyfing er á þeim þar sem
mælingar á landi sýna breytingu frá þvl að loftmyndin var tekin.
Einnig sáust greinilega staðir þar sem áin er að setja af sér. Þvi
er Ijóst að þetta svæði tekur breytingum en hve hröðum verður
að skoða á annan hátt. Sandáreyrar virðast einnig vera orðnar
frekar stöðugar. Ljóst er að við neðri enda þeirra er áin komin á
klöpp og því hugsanlegt að farvegsbreytingar á þessum kafla
verði takmarkaðar í framtíðinni. Líklegt má telja af þessum tölum
að meginrofið í dag eigi sér stað á svæðinu frá Murneyrum að
Kálfholti.
Út frá þessum niðurstöðum var lagt mat á hugsanlega setmyndun
í Hagalóni. Teknir voru út allir kaflar neðan Hagalóns og þeir
þættir sem þróuðust mjög hratt í upphafi annaðhvort teknir út,
byggt á skoðun á svæðinu eða hlutur þeirra lækkaður miðað
við að rof hafi verið mest til að byrja með og minnkað svo með
tímanum. í niðurstöðukafla skýrslunnar var þetta tekið nánar
saman og eftir stóð mat upp á um 0,05 Gl/ári sem gæti sest til í
Hagalóni.
Þessi aðferð hefur fært okkur nær takmarkinu en nægir ekki
ein og sér. Því var einnig ráðist í að meta rofkraft árinnar og
skoða þær jarðfræðilegu skorður sem henni eru settar. Tvenns
konar aðferðafræði var notuð. í fyrsta lagi var lögð áhersla á að
meta hvort áin hreyfi við botnefni sínu á mismunandi auraköflum
árinnar. Reynt var að leggja mat á svokallað jafnvægisástand
árinnar, þ.e. i hvaða þversnið og langhalla
áin leitaði ef engar jarðfræðilegar skorður
væru til staðar (hér er átt við hindranir
eins og klöpp). Til þess að svara þessum
spurningum var nauðsynlegt að vita
langhalla árínnar, mæla þversnið á
nokkrum stöðum innan aurakaflanna,
straumhraða og kornadreifingu botnefna.
Þar sem erfitt getur reynst að ná sýnum
af botnefnum voru einnig teknar gryfjur á
áreyrum til þess að meta botnefni.
Til viðbótar þessu var reynt að meta hve
langt áin getur gengið í að rjúfa aur úr
farvegi sínum, þ.e. hvaða jarðfræðilegu
skorður ánni eru settar. í þessum tilgangi
var botngerð árinnar skráð (klöpp eða
laus jarðlög) og þá hvort um fínefni (sand
í þessu sambandi) eða grófefni (möl) er að ræða og gerðar
þykktarmælingar á lausum jarðlögum á áreyrum.
Við nánari skoðun gagnanna kom í Ijós að almennt spila
jarðfræðilegar skorður (hraun, stórgrýti o.þ.h.) verulega stórt
hlutverkogí raunstærraenætlaðvarfyrirþessarannsóknarvinnu.
Einnig var óvissa í kornastærð fyrir botnefni það mikil að
oft reyndist erfitt eða ómögulegt að reikna flutningsgetu og
jafnvægisástand. Aðferðirnar gáfu þó góða hugmynd um virkni
sniðanna. Niðurstöður þessarar aðferðar eru sýndar í töflu 3.
í þessari vinnu skipti miklu máli hvar áin gat rofið botn og bakka.
Einungis eru tveir kaflar virkir frá Búrfelli að Urriðafossi. Efri
kaflinn nær frá Búrfelli að og inn í lónstæði Hagalóns og sá
neðri nær frá Árnesflúðum að og inn í lónstæði Heiðarlóns. í
grófum dráttum er efra svæðið grófara og flatara og því líklega
Áætlað magn m.v. rúmtaksútreikninga
Upptök efnis: Gl
min áætlað max
Dæling úr Bjarnalóni 4.0 6.0 8.0
Bjarnalækjarskurður 0.1 0.1 0.2
Bjarnalækur 1.3 4.0 6.0
Þverár - ekki teljandi magn
Þjórsá neðan Búrfells að Núpsskógatanga (eyrarnar) 0.7 0.8 0.9
Þjórsá neðan Búrfelis að Núpsskógatanga (farvegsbreyting) 0.9 1.0 1.1
Þjórsá frá Núpsskógartanga að Skarfaneslæk 2.0 3.0 9.0
Þjórsá frá Murneyrum að Kálfholti 3.0 7.0 11.0
Alls 12.0 21.9 36.2
Áætlað magn m.v. mat úrfrá mælingum. 18.0 22.0 26.0
Tafla 2 Úr skýrslunni um setmyndun í Hagalóni. Samantekt
niðurstaðna fyrir massavarðveislu og samanburður við mat
útfrá aurburðarlyklum, sjá tilvitnun í kafla 4.1 í töflunni. Hér er
átt við Gl á því tímabili sem til skoðunar var þ.e. 34 ár.
...upp í vindinn I 25