Upp í vindinn - 01.05.2014, Page 27

Upp í vindinn - 01.05.2014, Page 27
SETMYNDUN í HAGALÓNI aurburðarmælingar gefa til kynna að skriðaursflutningur við Krók sé um 0,11 Gl/ári miðað við 1.750 kg/m3 rúmþyngd skriðaurs og grófflutningspartur svifaursins um 0,55 Gl/ári sem gefur áætlaða setmyndun í Heiðarlón um 0,66 Gl. Bætt var við mælistað við Miðtanga sem er rétt ofan við efri enda lónstæðis Hagalóns. Niðurstöður mælinga þar gefa um 0,1 Gl/ári í setmyndun sem er ekki svo fjarri matinu hér að ofan upp á 0,05 Gl/ári. Allar umræddar niðurstöður eru teknar saman í töflu 5. Lokaorð Af ofangreindu má sjá að erfitt getur verið að meta setmyndun þar sem mælingar hafa ekki farið fram og huga þarf að mörgu. Áhugavert er hve niðurstöðurnar eru nálægt hvor annarri í mati á grófaurburði við Urriðafoss, nema þá í töflu 5 en þar er vert að hafa í huga að þar er staðsetningin miðuð við efri enda Heiðarlóns en ekki Urriðafoss. Ef önnur lón ofar stöðva aurburð frá eyrum ofan við Árnes og tekið er tillit til þess að Heiðarlón teygir sig vel yfir helming virku áreyranna á milli Urriðafoss og Árness er ekki ólíklegt að niðurstöðurnar séu töluvert minni en við Urriðafoss og því hugsanlegt að þessi niðurstaða sé nærri lagi. Heimildir 1. Esther H. Jensen, Jórunn Harðardóttir, Svava Björk Þorláksdóttir, Sigríður Magnea Óskarsdóttir og Snorri Zóphóníasson, Heildaraurburður neðri hluta Þjórsár árin 2001-2010, Veðurstofa íslands, unnið fyrir Landsvirkjun, LV-2013-135, Reykjavík. 2. Haukur Tómasson, Áhrif virkjunarframkvæmda á aurburð i Þjórsá, Orkustofnun, Raforkudeild, OS82044/VOD07, Reykjavík, maí 1982. 3. Hörn Hrafnsdóttir, Virkjanir í Þjórsá við Núp og Urriðafoss, Greinargerð um grófkorna aurburð við Urriðafoss, Almenna verkfræðistofan hf, unnið fyrir Landsvirkjun, LV-2003/091, Reykjavík, ágúst 2003. 4. Hörn Hrafnsdóttir, Setmyndun í Hagalóni, Rannsóknir, úrvinnsla og útreikningar, Almenna verkfræðistofan hf, unnið fyrir Landsvirkjun, LV-2006/003, Reykjavík, janúar 2006. er hlutuerh þitt ad hafa yfirsgn yfir reÞstunnn? D uiise - snjallar lausnir Dynamics NAV er einn mest seldi bókhaldshugbúnaður á íslandi í dag Lausnin veitir góða yfirsýn yfir reksturinn á sviði fjárhagsstjórnunar, framleiðslu, skýrslugerðar, sölu- og markaðssetningar. Notendavæn og sveigjanleg lausn sem einfalt erað bæta við kerfiseiningum eftir því sem fyrirtækið vex og dafnar. Wise hefur sérhæft sig í viðskiptahugbúnaði á sviði: viðskiptagreindar, fjármála, verslunar, sérfræðiþjónustu, sjávarútvegs, sveitarfélaga og flutninga. Snjallar lausnir - fyrir stærri sem smærri fyrirtæki <4 ujise Wise lausnir ehf. Borgartún 26, 105 Reykjavík Hafnarstræti 102,600 Akureyri sími: 545 3200 » wise@wise.is www.wise.is * M 4. Microsoft Micmsoft Partner ,Dynamics™NAV

x

Upp í vindinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.