Upp í vindinn - 01.05.2014, Side 56
HÖNNUN TREFJASTYRKTRA OG HEFÐBUNDINNA PLATNA Á FYLLINGU
-
Niöurstööur
Helstu niðurstöður verkefnisins eru þær aö sá möguleiki er fyrir
hendi að nota trefjastyrkta steinsteypu í stað hinnar hefðbundnu
plötu sem styrkt er með samhangandi járnagrind þar sem það á
við. Þó getur framkvæmdarkostnaður trefjastyrktra platna verið
mun meiri, eða allt að 46% m.v. grófa kostnaðaráætlun og m.t.t.
þess álagstilfellis sem skoðað var. Hér skal þó varað við því að
gera beinan verðsamanburð að úrslitakosti þar sem kostir og
gallar plötugerða geta verið mismunandi, t.d. sprungumyndun
á yfirborði.
Fyrir verða að liggja upplýsingar um þau áhrif sem trefjarnar hafa
á burðarhæfni steinsteypu. Slíkar upplýsingar getur reynst erfitt
að komast yfir, jafnvel hjá framleiðendum sem veita oft á tíðum
yfirborðskenndar upplýsingar um þá eiginleika sem trefjarnar
hafa. Því verður að framkvæma tilraunir til að meta þau áhrif
sem trefjarnar hafa. Hægt er að fullyrða að þekking hér á landi á
trefjastyrktum plötum er mjög lítil. Við upplýsingaöflun í tengslum
við verkefnið kom á óvart að yfirborðsþekking manna er algeng
um notkun trefja til steypugerðar en dýpri þekking, t.a.m. um
notkunareiginleika, skortir tilfinnanlega og þá sérstaklega
þekking á burðarþolslegum eiginleikum.
Burðarhæfni steinsteypu sem styrkt hefur verið með trefjum (
hóflegu magni er lægri en notkun á hefðbundinni samhangandi
járnagrind og kallar því á meiri plötuþykkt. Þar sem ekki er þörf
á gríðarlega mikilli burðarhæfni geta trefjarnar talist góður kostur
og ekki verri kostur en hin hefðbundna járngrind.
1. Guðbjartur Jón Einarsson,
„Um notkun trefja í burðarkerfi
veðrunarkápu forsteyptra
útveggjaeininga", B.Sc ritgerð,
Tækni- og verkfræðideild,
Háskólinn í Reykjavík, 2005.
2. Grace Concrete Products.
(2008, ágú.). STRUX® 90/40
Macro Synthetic Fiber for Slab
on Ground Applications. Grace
Concrete Products. [Rafrænt]. Af:
http ://www. na.graceconstruction.
com/concrete/download/
STRUX-60_FAQ_SOG_1 _11 _11.
pdf [Sótt: 27. júl. 2013].
3. Friðberg Stefánsson. „Plötur á
fyllingu - hönnunarferli", flutt á
námsstefnu Steinsteypufélags
íslands, Steyptar plötur á fyllingu,
Reykjavík, 2003.
4. Á. L. Dossland, „Fibre
Reinforcement in Load
Carrying Concrete Structures”,
Doktorsritgerð, Department of
Structural Engineering, Norwegian
University of Science and
Technology, Þrándheimi, 2008.
5. A. B. E. Klausen, Steel fibres
in load - carrying concrete
structures. Guideline survey
and practical examples,
Blindern: SINTEF Building and
Infrastructure, 2009.
, \ SANDBLÁSTUR & MÁLMHÚÐUN FERROZINK
V Ferro Zink hf. I www.ferrozink.is I ferrozink@ferrozink.is I Árstíg 6 I 600Akureyri Isími 460 1500 I Álfhellul2-14 1 221 Hafnarfjörður I sími 533 5700 V
BYKO
BÚÐU BETUR. BORGAÐU MINNA.
56 I ...upp í vindinn