Upp í vindinn - 01.05.2014, Page 72
STEIN STEYPUFELAG
ÍSLANDS ;.i
Erla Margrét
Gunnarsdóttir
framkvæmdastjóri
Steinsteypufélags
islands
Margir þekkja Steinsteypufélag íslands en þó ekki allir. Steinsteypufélag íslands er þekktast fyrir að
gefa út árlegt fréttabréf í febrúar og halda sömuleiðis Steinsteypudaginn hátíðlegan í febrúar ár hvert.
Þar koma saman helstu steypuáhugamenn og -konur landsins og fara yfir hitamál byggingariðnaðarins
í formi fyrirlestra og umræðna.
Steinsteypufélagið er skilgreint sem samtök
einstaklinga, fyrirtækja, félaga og stofnana,
sem áhuga hafa á steinsteypu sem og öðrum
sementsbundnum efnum og var félagið stofnað á
Hótel Sögu þann 11. desember 1971. Félagið er
því að sigla inn í sitt fertugasta og þriðja aldursár.
Tilgangur Steinsteypufélags íslands er að auka
veg steinsteypunnar og stuðla að fræðilegri
þróun á sviði steinsteypu og steinsteyputækni
á íslandi. Steinsteypufélag íslands veitir árlega
verðlaun til námsmanna, sem unnið hafa að
lokaverkefnum tengdum steypu I tæknifræði eða
meistara- eða doktorsverkefnum í verkfræði.
Einnig hefur félagið nú á fjórða ár veitt
Steinsteypuverðlaunin og er viðurkenningin fyrir
mannvirki þar sem saman fer frumleg og vönduð
notkun á steinsteypu í manngerðu umhverfi.
Steinsteypufélag íslands leitast stöðugt við að
vekja athygli á mikilvægi steinsteypu I umhverfi
okkar. Steinsteypuverðlaunin 2013 hlaut Nýja
bíó, sem er nýtt hús en byggt f anda eldra húss
og fær steinsteypan, formuð af fallegu handverki,
að njóta sín samkvæmt áliti dómnefndar.
Einnig er tilgangur Steinsteypufélags íslands að
skipuleggja fyrirlestra og námskeið, stuðla að
rannsóknum og aukinni hæfni og menntun þeirra
sem vinna með steypu. í ár hyggst stjórn félagsins
halda að minnsta kosti einu sinni Steypukaffi
um málefni sem dynja á byggingariðnaðinum
og eitt af markmiðum félagsins í ár er að halda
áfram að vekja áhuga fyrirtækja og verktaka
á gæða- og menntunarmálum í tengslum við
steypuframkvæmdir. Vinna að uppbyggingu
menntakerfis fyrir þá aðila sem vinna með
steypuna hefur verið hafin og verður vonandi
meira áberandi eftir því sem á líður.
Steinsteypufélag íslands hefur einnig þann
tilgang að taka þátt I norrænu og alþjóðlegu
samstarfi á sviði steinsteypu og í ár, eða nánar
tiltekið 11. - 15. ágúst nk. verða haldnar þrjár
alþjóðlegar steinsteypuráðstefnur í Hörpunni á
72 I ...upp í vindinn