Upp í vindinn - 01.05.2014, Side 74
VERKFRÆÐINGAFELAG
ÍSLANDS
Verkfræ&ingafélag 1
íslands 1UU
Fyrsti íslenski verkfræðingurinn, Sigurður
Thoroddsen, lauk námi frá DTH í
Kaupmannahöfn árið 1892. Tveimur
áratugum siðar var Verkfræðingafélag
íslands stofnað. Að stofnun félagsins
stóðu þeir níu íslensku verkfræðingar sem
lokið höfðu námi, einn húsameistari og
þrír erlendir tæknimenn sem búsettir voru
hérlendis. Verkfræðingum fjölgaði hægt
framan af öldinni og voru félagsmenn
í VFÍ innan við eitt hundrað árið 1940. í
dag eru félagsmenn VFÍ rúmlega 2200. í
félaginu eru um 75% sem lokið hafa prófi
í verkfræði.
Störf verkfræðinga ná yfir stöðugt stærra
svið og má segja að nám í verkfræði veiti
aðgang að nánast hvaða starfsvettvangi
sem er. Fyrir rúmum eitt hundrað árum
mátti fyrsti íslenski verkfræðingurinn,
og þeir sem á eftir honum komu næstu
áratugina, búa við takmarkaðan skilning
á menntun sinni og getu - það þótti mikil
sóun að jafn efnilegur piltur og Sigurður
Thoroddsen skyldi ekki verða prestur eða
læknir!
Á árinu 2011 sameinuðust Verk-
fræðingafélag íslands og Stéttarfélag
verkfræðinga undir heiti þess fyrrnefnda.
VFÍ vinnur að hagsmuna- og kjaramálum
verkfræðinga með fjölbreyttu og
öflugu starfi og félagið er mikilvægur
samstarfsvettvangur til þess að efla
verkfræðilega og vísindalega þekkingu.
VFÍ stendur vörð um lögverndað
starfsheiti og gæði verkfræðinámsins og
vinnur að hagsmunum verkfræðinga á
breiðum grundvelli til framtíðar.
SIÐAREGLUR VERKFRÆÐINGAFÉLAGS ÍSLANDS
VIRÐING OG JAFNRÉTTI
Félagar VFI sýna fólki tillitssemi og virðingu, óháð kyni,
lífskjörum, þjóðfélagsstöðu, menningu, þjóðerni og
kynþætti.
Þetta felur í sér að:
• Koma fram af tillitssemi, sanngirni, vinsemd og virðingu
við annað fólk.
• Halda ávallt í heiðri góða siði og grundvallargildi
samfélagsins.
• Hafa í heiðri jafnrétti kynja og kynþátta.
• Virða fag- og ábyrgðarsvið annarra og vinnuframlag
þeirra.
• Stuðla að góðum starfsanda með einlægni, heiðarleika
og umburðarlyndi.
FAGLEG ÁBYRGÐ OG RÁÐVENDNI
Félagar VFÍ gera sér grein fyrir faglegri ábyrgð sinni og
vinna í samræmi við viðurkenndar gæðakröfur.
Þetta felur í sér að:
• Viðhalda og endurnýja stöðugt þekkingu sína og færni.
• Deila þekkingu sinni og færni með samstarfsfólki.
• Vinna verksín affaglegri ábyrgðogeftirbestu samvisku.
• Virða lög og reglur samfélagsins og stéttar sinnar.
• Gæta hagsmuna viðskiptavina sinna.
• Gera grein fyrir þeim tengslum eða hagsmunum, sem
gætu gert starf þeirra tortryggilegt.
• Taka ekki við þóknun eða fríðindum frá þriðja aðila í
sambandi við verkið eða bjóða fram til þriðja aðila slika
þóknun eða fríðindi.
SAMFÉLAGSLEG ÁBYRGÐ OG SJÁLFBÆRNI
Félagar VFÍ eru meðvitaðir um áhrif verka sinna á
samfélag, umhverfi og náttúru.
Þetta felur í sér að:
• Setja ávallt í öndvegi öryggi, heilsu og velferð
almennings.
• Gæta þess, að tæknilegar lausnir séu miðaðar við
sjálfbærni og ábyrga nýtingu auðlinda.
• Vera heiðarlegur og hreinskilinn um margþætt áhrif
tæknilegra lausna og annarra verkefna, og greina
á viðeigandi vettvangi frá atriðum sem gætu ógnað
öryggi almennings eða verið skaðleg umhverfinu.
• Taka virkan þátt í upplýstri opinberri umræðu um
samfélagsleg málefni þegar hún beinist að fagsviði
verkfræðingsins.
74 I ...upp í vindinn