Mímir - 01.04.1973, Blaðsíða 21

Mímir - 01.04.1973, Blaðsíða 21
FRÍÐA Á SIGURÐARDÓTTIR: ÞJÓÐFÉLAGSIEG OG STJÓRNMÁLALEG EFNI í KVÆÐUM JÓNASAR HALLGRÍMSSONAR Þegar farið er yfir kveðskap Jónasar Hallgríms- sonar á síðari hluta 20. aldar út frá þjóðfélags- legu og stjórnmálalegu sjónarmiði, þá vekur það nokkra furðu við fyrstu yfirferð, að eftir- tekjan virðist ekki mikil. Einkum er þetta ein- kennilegt, ef hafður er í huga hinn brennandi áhugi Jónasar á landi og þjóð, og ekki síður að hann yrkir meiri hluta ljóða sinna á því tímabili, sem Sverrir Kristjánsson, sagnfræðing- ur, kallar gróskumesta skeiðið á pólitískum þroskaferli þjóðarinnar.1 En þegar farið er að rýna betur í ijóðin, og sögulegur bakgrunnur hafður í huga, sést, að eftirtekjan er meiri en maður hyggur. Ein skýringin er sjálfsagt sú, að okkur, sem alin erum upp við gífur- og stóryrðaflaum ís- lenzkra stjórnmála í fjölmiðlum nútímans, hætt- ir til að sjást yfir allt það, sem ekki er skorinn sami stakkur. En orðaglamur var nú einu sinni ekki tónn Jónasar. 011 erum við börn okkar tíma, og til að skilja þjóðfélagslega og pólitíska ádeilu í ijóðum Jónasar verðum við að kanna þann tíma, er hann lifði á. Við, sem lifum í dag, eigum erfitt með að gera okkur grein fyrir því, að ekki þótti öllum Islendingum, sem uppi voru á fyrri hluta 19- aldar, það sjálfsagður hlutur að berjast fyrir innlendri stjórn, heldur töldu slíkt „nýjabrum" og jafnvel „óðs manns æði."2 Er því hollt að líta á, hvað Magnús Stephensen, konferensráð í Viðey, sagði um bar- áttu „róttæku" aflanna í Kaupmannahöfn á öndverðri öldinni: „Máske eldi það eftir af fornum Republicanisme, að unglingar ný- skroppnir úr skóla og sem taliter qualiter kókl- ast hafa gegnum lta eða 2að Examan og ætla að fara að læra nokkuð til gagns, halda sig sem borna eða kallaða fyrir tímann til Islands vís- inda- eða stjórnmála taumhalds, án kóngs köll- unar, rétt af sjálfsdáðum."3 Þetta segir hinn konunglegi embættismaður Magnús Stephensen, og var hann ekki einn um þessa skoðun. En þótt reynt sé að finna anda liðins tíma í ýmsum samtímaheimildum og skáldskap, þá verður það aldrei öll sagan. Með þann óvissa bakgrunn í huga, vil ég nú líta á ijóð Jónasar út frá þjóðfélagslegu og pólitísku sjónarmiði. Styðst ég við útgáfu Matthíasar Þórðarsonar, Rit eftir Jónas Hallgrímsson, I. Rv. 1929, og fer ég eftir þeirri tímaröð, sem þar er gefin upp, nema annars sé getið. Skal fyrst litið á þau ljóð, sem Jónas yrkir á skólaárum sínum í Bessastaðaskóla árin 1826—29. Ekki fer mikið fyrir þjóðfélagslegri ádeilu í þessum skólakveðskap Jónasar. Er það ef til vill ekki svo einkennilegt, ef hugsað er til, hvernig skólinn var uppbyggður. Páll Mel- sted lýsir í endurminningum sínum lífinu á Bessastöðum svo: „Allt var mjög einfalt og óbrotið, mér liggur við að segja, þar var margt, sem minnti á Spörtu hjá Grikkjum. ... Líkam- inn varð þar harður og hraustur, það gjörðu glímurnar, knattleikurinn og sundið, ásamt kröft- ugri og nógri fæðu, sálin varð forneskjuleg og hálfklassísk,.. ."4 Engu að síður yrkir Jónas þarna tvö mjög harðorð ádeilukvæði á kaup- mannavaldið, Skraddara-þankar um kauþmann- inn, með undirtitlinum Breytt kvæði, (Rit, bls. 10—11), og Kvölddrykkjan, (Rit, bls. 18—20). 21
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Mímir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.