Mímir - 01.04.1973, Blaðsíða 32

Mímir - 01.04.1973, Blaðsíða 32
ráðs til stuðnings þessari tillögu „um stofnun institúts í íslenzkum fræðum". Hinn 18. júní 1964 samþykkti háskólaráð svo þessa tillögu efnislega, þó að formi til væri þar um nýja tiliögu að ræða. Hins vegar var lítið sem ekkert tillit tekið til stofnanahugmyndarinnar, þegar hafizt var handa um byggingu hússins, eins og menn reka sig raunar æ áþreifanlegar á, með hverju misseri sem líður. En upphaf sjálfrar stofnanahugmyndarinnar hér má líklega rekja aftur til um 1960, en um það leyti var hún að ryðja sér endanlega tii rúms á hinum Norður- löndunum. Hvert er starfssvið stofnunarinnar? Samkvæmt reglugerð stofnunarinnar er það talið fjórþætt, og eru þar tveir meginþættir. Er annars vegar um að ræða rannsóknastarfsemi, en hins vegar ákvæði um það, að sú kennsla við heim- spekideiid, sem starfsmenn stofnunarinnar hafa með höndum, skuli vera á vegum hennar. Markmiðið er þannig annars vegar að efla rannsóknarstarfsemina og hins vegar að tengja nánar saman rannsóknir og kennslu með því að skapa sameiginlegan starfsvettvang fyrir kenn- ara og nemendur á þessu fræðisviði innan deild- arinnar. Samkvæmt reglugerð er rannsóknastarf- semin þríþætt. I fyrsta lagi skal stofnunin „ann- ast grundvallarrannsóknir í málvísindum, eink- um málfræði norrænna mála, sögu þeirra og for- sögu. I tengslum við rannsóknastörfin hefur stofnunin á hendi útgáfu fræðirita, gengst fyrir fræðafundum og ráðstefnum, námskeiðum til kynningar á fræðilegum nýjungum, rannsókna- æfingum og fyrirlestrum, og fæst við hver önn- ur þau verkefni, er stuðlað geti að því að efla rannsóknastarfsemi hennar, eftir því sem við verður komið og fé er veitt til." I öðru lagi er gert ráð fyrir því, að upp verði komið talmálssafni (eins og við höfum kallað það okkar í milli), þ. e. safni af upptökum af íslenzku nútíðarmáli, og aðstöðu til úrvinnslu og rannsókna á því. I þriðja lagi er svo gert ráð fyrir hagnýtum verkefnum, t. d. í tengslum við málakennslu, og að stofnunin gangist fyrir „námskeiðum, æfingum eða fyrirlestrum fyrir starfandi skólakennara." Hvert er starfslið stofnunariimar? Um það eru ákvæði í reglugerðinni, sem eru þó e. t. v. ekki Ijós í öllum einstökum atriðum. I fyrsta lagi eru fastráðnir kennarar, sem starfa á fræðasviði stofnunarinnar. I öðru lagi fastur kennari í almennum málvísindum, unz komið yrði á fót stofnun í þeirri grein. I þriðja lagi erlendir eða innlendir sérfræðingar, gistiprófes- sorar og styrkþegar, eftir því sem fé er veitt til. Og að lokum lausráðið aðstoðarfólk, sem vænt- anlega yrði úr hópi stúdenta öðru fremur. Hvernig er stjórnun stofnunarinnar háttað? Hér koma einnig til ákvæði reglugerðar, en samkvæmt henni sér 3ja manna stjórn um rekst- ur stofnunarinnar. Hún samanstendur af for- stöðumanni, er skal vera úr hópi prófessora og er skipaður af rektor, einum manni, er Heim- spekideild kýs, og einum stúdent, er Mímir tilnefnir. Stjórnin er skipuð til 3ja ára í senn, og hana skipa nú auk mín þau Baldur Jónsson, lektor, sem er formaður, og Kolbrún Haralds- dóttir, stud.mag., kjörin af stúdentum. Hvert er vald stofnunarinnar, t. d. í kennslumálum ? Formlega séð hefur stofnunin lítið vald í þessum málum, þar eð t. d. ráðning allra kennara heyrir undir deildina og yfirvöld, námsskipan er ákveð- in í reglugerð háskólans og námsskrá er sömu- leiðis sett samkvæmt ákvæðum í reglugerð há- skólans. En raunin hefur orðið sú hingað til og verður vafalaust, að að öllum jafnaði verður farið að tillögum stofnunarinnar um náms- og kennsluskipan í þeim atriðum, sem hún lætur til sín taka. Eru einhverjar nýjungar fyrirhugaðar í kennslunni? A síðastliðnu hausti var gefin út á vegum stofn- unarinnar „Námsskrá til kandídatsprófs í ís- 32
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Mímir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.