Mímir - 01.04.1973, Blaðsíða 23

Mímir - 01.04.1973, Blaðsíða 23
jafnan farið vel á með honum og Ulstrup."9 Hið hálfdanska þorp Reykjavík hafði um 600 íbúa á þessum tíma. Flestir hinna íslenzku embættismanna sátu í nágrenni við þorpskjarn- ann, en yfirstétt hans var aðallega kaupmenn, verzlunarstjórar og danskir embættismenn. En þótt ekki séu til miklar heimildir um það, hvern- ig Jónasi líkaði lífið á þessum árum, þá læðist að manni sá grunur, að honum hafi ekki þótt svo leitt smáborgaralífið í Reykjavík. Hann hefur tryggt kaup, unir starfi sínu þokkalega, er tíður gesmr í veizlum „heldra fólksins", og heldur sig vel. Lítið fer fyrir þjóðfélagslegum skáldskap, hvað þá pólitískum, hjá Jónasi á þessum árum. Má nefna sem dæmi, að hann mærir mjög í Ijóði Hoppe stiftamtmann í ágúst 1829, en Hoppe var þá að fara utan til annarra starfa, og talar Jónas þar um kónginn sem „landsins föður": En landsins faðir, sem lagði þér verðug völd í skaut, metur mannkosti að maklegleikum, — heiðri og hylli launar. (Við burtför stiftamtsmanns Hoppe... bls. 29—31). Og þetta konungalof á eftir að heyrast oftar í Ijóðum Jónasar. Jónas yrkir þó nokkuð á dönsku á þessum árum, og er það raunar í einu þessara dönsku ljóða, sem endurómur heyrist frá Ijóðinu Nótt og morgunn. Er það í Ijóðinu Ved en fest i Reikevig. I anledning af Prins Ferdinands Formæling, (Rit, bls. 239—241). Ljóðið er 8 erindi, og af þeim eru 5 fyrstu erindin óður til lands og þjóðar, en svo virðist Jónas minnast þess, hvers vegna hann er að yrkja, og síðusm 3 erindin eru hamingjuóskir til Ferdinands og Caroline. Jónas yrkir þarna um hina stórkostlegu og skáldlegu náttúru landsins, og verndaranda lands og þjóðar, sem harmar: ... den svundne styrke, glemte Hæder, det faldne Navn. Skólabræður Jónasar, sem komnir voru til náms í Kaupmannahöfn, þreytast ekki á því að hvetja Jónas til að koma á eftir þeim. Einkum er Tómas Sæmundsson iðinn við að ögra og hvetja Jónas í bréfum sínum: Þú hugsar nú víst ekki um annað en hvað mikill maður þú varst, þegar þú, alfarinn úr skólanum, settist niður í höfuðstaðnum sem amanúensis hjá land- fógetanum, — dönskum manni!", segir Tómas í bréfi til Jónasar, og upplýsir hann um leið um, að „í 20 ára kontórtíð" læri menn ekki annað en að skrifa fallega, „en það er þá það sem börnin læra þegar þau eru á 10. árinu."10 Hvatning vinanna og löngun til frekara náms ber loks þann árangur, að Jónas leggur land undir fót, og fer til Kaupmannahafnar til að nema lög árið 1832. — Ef til vill hefði Jónas orðið hamingjusamari sem reykvískur 19. aldar smáborgari hér heima, því að hans beið ströng og erfið leið, en Tómasi og vinum hans eiga Islendingar ógoldna skuld fyrir þrautseigju sína við að tosa ungann úr hreiðrinu. Nú kemur löng þögn á skáldskaparferli Jónasar. Margt kemur til að Jónas staldrar nú við. Franska júlíbyltingin 1830 hafði mjög mikil áhrif í Skandinavíu, og þó einkum í Danmörku. „Eftir árið 1830 voru um alla Norðurálfuna miklar og megnar hreyfingar til frelsis og framfara. Þjóðernistilfinningin var rík, frelsisþráin mikil. Júlíbyltingin í Frakk- landi hafði ósjálfrátt haft þau áhrif á hjörmn, að menn sáu nú brestina hver hjá sinni þjóð, og höfðu dirfsku til að hyggja til breytinga."11 segir Hannes Hafstein í ævisögu sinni um Jónas. Ein bein afleiðing frönsku júlíbyltingarinnar varð m. a. sú í Danmörku, að Friðrik VI. gaf út tilskipan sína 28. maí 1831 um stofnun ráðgefandi stéttaþinga, 1 fyrir hvort hertoga- dæmanna, 1 fyrir Jótland og 1 fyrir Eydani, en þar skyldu Islendingar eiga fulltrúa. En ýmsum Islendingum þótti þetta lítið góð hugmynd hjá konungi, eins og sjá má af bæklingi Baldvins Einarssonar frá 183212 sem síðar verður í mörgum atriðum stefnumótandi fyrir Jónas og félaga hans. Islendingum í Kaupmannahöfn, 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Mímir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.