Mímir - 01.04.1973, Side 31

Mímir - 01.04.1973, Side 31
STOFNANIRNAR ÞRJAR Nú hafa rannsóknastofnanirnar á vegum Heimspekideildar starfað um árs skeið. I desem- ber síðastliðnum fóru nokkrir fréttasnápa Mímis til funda við forstöðumenn þessara fyrir- tækja, og eru viðtölin, sem hér birtast, frá þeim tíma. Er það von Mímis, að lesendur verði öllu fróðari um starf stofnananna, er þeir hafa lesið það, sem hér fer á eftir. STÆRÐFRÆÐINGUR KENNIR MÁLVÍSINDI KANNSÓKNASTOFNUN í NORKÆNUM MÁLVlSINDUM Forstöðumaður: Hreinn Benediktsson, prófessor. Formaður stjórnar: Baldur Jónsson, lektor. Ritari stjórnar: Kolbrún Haraldsdóttir, fulltrúi stúdenta. Viðtal við Hrein Benediktsson. Hver er forsaga stofmmariiuiar? Arið 1968—69 voru í athugun breytingar á háskólalögunum. Þá kom m. a. inn ákvæði (í 9. grein) um deildarstofnanir við háskólann. í samræmi við það lögðum við Halldór Hall- dórsson í febrúar 1969 fram í heimspekideild tillögu til reglugerðar fyrir Rannsóknastofnun í norrænum málvísindum. Sú tillaga var í at- hugun fram eftir sumri og var látin bíða af- greiðslu í heimspekideild, þar til fram höfðu komið tilsvarandi tillögur um stofnanir í bók- menntafræði og sagnfræði. Var þessi dráttur raunar ástæðulaus, þar sem ekki var um það að ræða að færa alla starfsemi deildarinnar yfir á form stofnana eða skipta deildinni í stofnanir, eins og sjálf stofnanahugmyndin fel- ur þó í sér. Voru þessar tillögur allar svo af- greiddar frá deild haustið 1969 og til ráðuneytis í ársbyrjun 1970. Viðbrögð ráðuneytisins voru á þá lund, að það ritaði deildinni bréf með ósk um fjárhagslega greinargerð. Þessu bréfi var síðan svarað snemma vors 1970. Var síðan kjörin nefnd í deildinni til að vinna að fram- gangi málsins, og vann hún mikið og gott starf undir forsæti Halldórs Halldórssonar, og hlutu reglugerðirnar staðfestingu 13. apríl 1971 og komu til framkvæmda 1. janúar 1972. Þetta er hin beina, skjalfesta forsaga þessara þriggja stofnana. Hins vegar mun forsagan í raun vera öllu lengri. Eg minnist þess t. d., að þegar rætt var um byggingu Arnagarðs, þá bar mál þetta mjög á góma. Atti ég þá sæti í háskólaráði og bar fram tillögu 27. jan. 1964 um, að í þessu húsi yrði „komið fyrir „institúti" í íslenzkum fræðum", eins og þessar greinar hétu þá í reglu- gerð háskólans. A fundi sínum 20. maí 1964 gerði Heimspekideild síðan ályktun til háskóla- 31

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.